Fara í efni
Íþróttir

Emma óstöðvandi í sigri Þórs á Skallagrími

Emma Karólína Snæbjarnardóttir í leik liðsins gegn Þór úr Þorlákshöfn í fyrstu umferð mótsins. Emma var óstöðvandi í leiknum í Borgarnesi í dag. Mynd: Guðjón Andri Gylfason.

Kvennalið Þórs í körfuknattleik vann mjög öruggan sigur á liði Skallagríms í annarri umferð þegar liðin mættust í Borgarnesi fyrr í dag. Lokatölur urðu 56-108 fyrir Þór. Emma Karólína Snæbjarnardóttir fór á kostum í liði Þórs, skoraði 33 stig og var með 46 framlagspunkta.

Þórsliðið náði strax frumkvæðinu og jók muninn jafnt og þétt strax í fyrsta leikhluta, vann hann með 15 stiga mun. Svipað var uppi á teningnum í öðrum leikhluta og munurinn orðinn 22 stig Þór í vil að loknum fyrri hálfleiknum. Enn jókst munurinn í seinni hálfleiknum og heldur hraðar í þriðja leikhlutanum en áður því Þór vann þriðja leikhlutann með 21 stigs mun og þann fjórða með níu stiga mun. Öruggur sigur nánast frá upphafi hleiks.

Skallagrímur - Þór (15-30) (18-25) 33-55 (10-31) (13-22) 56-108

Emma Karólína Snæbjarnardóttir var stigahæst í Þórsliðinu, skoraði 33 stig. Hún tók auk þess tíu fráköst, öll í vörninni, og gaf fimm stoðsendingar. Með frammistöðunni í dag urðu framlagspunktar hennar 46! Framlagspunktarnir gefa til kynna heildarframmistöðu leikmanns miðað við alla tölfræðiþætti. Ksenija Kuzmanovic kom næst í stigaskorinu hjá Þór með 17 stig. Nile Miller tók 14 fráköst. Hjá Skallagrími var það Embla Kristínardóttir sem skoraði mest, 20 stig. 

Helstu tölur, stig/fráköst/stoðsendingar:

Skallagrímur

Embla Kristínardóttir 20/9/1, Rakel María Pálmadóttir 14/11/1, Viktoría Rós Ólafsdóttir 11/5/2, Agla Dís Adólfsdóttir 6/7/0, Aðalheiður Ella Ásmundsdóttir 2/6/1, Elín Rós Stefánsdóttir 2/1/0, Valborg Elva Bragadóttir 1/1/0, Julia Caril Lu Adlawan 0/3/1, Karen Munda Jónsdóttir 0/1/0, Lovísa Hansen Daðadóttir 0/1/0.

Þór

Emma Karólína Snæbjarnardóttir 33/10/5, Ksenija Kuzmanovic 17/5/5, Nile Miler 14/14/4, Natalía Mist Þráinsdóttir Norðfjörð 16/4/4, Vaka Bergrún Jónsdóttir 11/0/2, Karen Lind Helgadóttir 9/7/4, Sigurlaug Eva Jónasdóttir 4/0/1, Kristný Halla Bragadóttir 4/2/2.

Leikskýrsla og tölfræði

Staðan í deildinni