Fara í efni
Fréttir

Forseti bæjarstjórnar vísar ásökunum á bug

Halla Björk Reynisdóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, vísar á bug ásökunum um slæleg vinnubrögð bæjarstjórnar varðandi minnisvarða um síðutogara sem hópur áhugamanna í bænum hefur unnið að.

Akureyri.net greindi frá því í morgun að hópurinn ætli að stöðva vinnu við verkefnið og bíða þar til eftir kosningar næsta vor með von um  að næsta bæjarstjórn sýni málinu meiri áhuga.

„Ásökunum um slæleg vinnubrögð bæjarstjórnar vísa ég alfarið á bug,“ segir Halla Björk. „Málið var tekið fyrir í skipulagsráði og starfsfólki falið að finna verkinu stað í samvinnu við forsvarsmenn verkefnisins. Það samtal var í gangi og þetta upphlaup núna kemur því mjög á óvart. Ég átti sjálf einn fund með þeim þar sem fór vel á með okkur og nokkrar staðsetningar ræddar sem skoða átti nánar. Verki eins og þessu þarf að finna góðan stað, þar sem það fellur vel að umhverfinu.“