Bíða með minnisvarðann eftir nýrri bæjarstjórn

Hópur sem unnið hefur að því að koma upp minnisvarða á Akureyri um síðutogara hefur ákveðið að stöðva vinnu við verkefnið vegna „áhugaleysis og hreint út sagt slælegra vinnubragða bæjarstjórnar Akureyrar,“ eins og segir í yfirlýsingu frá hópnum.
Ákveðið hefur verið að bíða þar til eftir kosningar til bæjarstjórnar á næsta ári „með von um að hér verði kjörin bæjarstjórn sem sýni þessari merku sögu, útgerðar og sögu síðutogara sem hún svo sannarlega er, meiri virðingu og áhuga en núverandi bæjaryfirvöld.“ Í yfirlýsingunni er Pétur Ólafsson, hafnarstjóri, einnig gagnrýndur vegna framgöngu hans í málinu.
Yfirlýsingin er svohljóðandi:
„Vegna áhugaleysis og hreint út sagt slælegra vinnubragða bæjarstjórnar Akureyrar í að finna minnisvarðanum um síðutogara stað í bæjarlandi Akureyrar er greinilega kemur fram í allri stjórnsýslu bæjarins undanfarnar vikur og mánuði í þessu máli, höfum við sem fram til þessa dags höfum haft með málefni minnisvarðans að gera, ákveðið að stöðva alla frekari vinnu við verkefnið, þ.e.a.s. að finna minnisvarðanum stað í samstarfi við núverandi bæjaryfirvöld, og bíða fram yfir næstu sveitastjórnarskosningar næsta vor með von um að hér verði kjörin bæjarstjórn sem sýni þessari merku sögu, útgerðar og sögu síðutogara sem hún svo sannarlega er, meiri virðingu og áhuga en núverandi bæjaryfirvöld.
Við lýsum einnig yfir furðu okkar á hreint út sagt ótrúlegri framgöngu Péturs Ólafssonar hafnarstjóra í þessu máli og værum meir en tilbúnir að fá að vita hvaða erinda hann gengur í þessu máli. Er hann með umboð bæjarstjórnar Akureyrar til að ganga fram hjá vinnuhópnum um minnisvarðann og kalla til sín utanaðkomandi aðila og leggja fram tillögu að staðsetningu sem var vitað alla tíð að var ekki og myndi aldrei vera samþykkt af okkar hálfu? Þessi vinnubrögð Hafnarstjórans sem við töldum vera að vinna með okkur að lausn málsins eru hreint út sagt ömurleg og hafnarstjóranum til skammar.
En við vinnuhópurinn munum ekki láta hér staðar numið.
Við munum áfram vinna með Slippnum að smíði minnisvarðans og við látum klára smíði hans ásamt ljósahönnun og samsetningu söguskiltis eins og að hefur verið stefnt, en bíðum til ársins 2026 með að reyna að finna minnisvarðanum stað sem sómi er að fyrir þá merku útgerðasögu er saga síðutogara var.
Verkefnið er í okkar höndum og verður ekki tekið af okkur hvorki af Hafnarstjóranum á Akureyri né bæjaryfirvöldum.
Sigfús Ólafur Biering Helgason.
Davíð Hauksson.
Trausti Jörundarson.
Sævar Ingi Jónsson.“
- Frétt Akureyri.net um minnisvarðann: Vilja minnisvarða um síðutogara og sjómenn