Fara í efni
Menning

Forboðin ást á ísnum – Frábær skáldsaga

AF BÓKUM – 85

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net frá bók eða bókum á þriðjudögum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Dagný Davíðsdóttir_ _ _

Ein af mínum uppáhalds bókum sem ég hef lesið á árinu en án efa íþrótta rómansinn Heated Rivalry eftir Rachel Reid. Bókin er önnur í sex bóka seríunni Game Changers en það er hægt að lesa bækurnar einar og sér, ekki nauðsynlegt að lesa þær allar eða í réttri röð (þó ég mæli auðvitað með því ef fólk er í stuði).

Bókin fjallar um NHL hokkístjörnurnar Ilya Rozanov og Shane Hollander. Þeir eru fyrirliðar í liðunum sínum í Boston annars vegar og Montreal hinsvegar. Þessi lið mætast oft og gera fjölmiðlar í því að mála þá upp sem erkifjendur á ísnum. En eru þeir það? Snemma í atvinnuferli þeirra þróa þeir með sér samband þar sem þeir hittast á laun sem endist í mörg ár og þróast út í forboðna ást. Bókin er vissulega mjög „krydduð“, ítarlegar lýsingar á kynlífi gera samt svo mikið fyrir ástarsöguna þeirra á milli en kynlíf er auðvitað stór partur af ástinni.

Það er eitthvað við þessa bók sem gerir hana svona frábæra, kannski bara hvað þeir eru miklir jafningjar. Þrátt fyrir að vera mjög ólíkir eru þeir báðir atvinnuíþróttamenn og skilja líf hvor annars. Þetta er auðvitað allt í leyni því það er engin stórstjarna í NHL sem hefur komið út út skápnum. Það er því mikið tabú að vera samkynhneigður í svona karllægum geira og því ekki auðvelt fyrir þá að viðurkenna fyrir sjálfum sér að þeir beri tilfinningar til hvor annars því þeim líður í raun eins og það sé bannað, því þetta gæti haft mikil áhrif á feril þeirra.

Þættir upp úr bókunum komu út fyrir jólin í fyrra og eru þeir alveg merkilega nákvæmir eftir bókunum. Þeir eru mjög góðir líka. Verið er að taka upp seríu tvö en hún er úr sjöttu bók Game Changers seríunni sem fjallar einnig um Ilya og Shane. Þriðja bókin um þá kemur svo á næsta ári.

Ég mæli með Heated Rivalry ef þú fílar vel kryddaðar ástarsögur!

https://www.amazon.com/Heated-Rivalry-Rachel-Reid-audiobook/dp/B07YZPCK62