Fjallakonungurinn krýndur á morgun
Félagar í Team23 vélsleðaliðinu halda svokallað Hillcross í Hlíðarfjalli á morgun, Hvítasunnudag; keppnina kalla þeir Fjallakonunginn og reiknað er með mikilli skemmtun og spennu, því yfir 50 keppendur eru skráðir til leiks.
Brautin hefst við enda Hjallabrautalyftunnar og í henni eru bæði stökkpallar og beygjur. Ekið verður upp með Strýtuskálanum og áfram upp Norðurbakkann að endamarkinu.
Keppni hefst kl. 18:00 en stólalyftan Fjarkinn er opin frá kl. 17:00 til 22:00. Miði í lyftuna og aðgangur að áhorfendapöllum kostar 3.000 krónur og í tilkynningu eru áhorfendur hvattir til að mæta sem fyrst og koma sér fyrir. Veitingastala verður í Strýtuskálanum, plötusnúður verður á pallinum og „óvæntur gestur mætir á staðinn eftir verðlaunaafhendingu og heldur uppi stemmingu með DJ Ayobe,“ segir í tilkynningu. „Hlökkum til að sjá sem flesta á þessu vetrarslútti sleðamennskunnar!“ segir þar.