Fara í efni
Mannlíf

Fiskedagurinn mikli haldinn hátíðlegur

Willard Fiske velgjörðarmaður Grímseyinga sem steig þó aldrei á land í eynni.

Árleg Fiskehátíð var haldin í Grímsey á laugardaginn eins og siður er 11. nóvember, til þess að minnast afmælis Daniels Willard Fiske (1831-1904), velgjörðmanns samfélagsins þar en steig þó aldrei fæti á land í Grímsey. 

Boðið var upp á girnilegt kvöldverðarhlaðborð í félagsheimilinu Múla og síðan slegið upp balli, að því fram kemur á vefsvæði Grímseyjar. Alls dvelja tæplega 30 manns út í eyju um þessar mundir og fögnuðu deginum saman.

Daniel Willard Fiske var bandarískur prófessor við Cornell háskóla í New York ríki. Fiske lærði íslensku þegar hann stundaði nám í Danmörku 1849 og safnaði öllu íslensku efni sem til var á prenti auk ljósmynda af Íslandi. Stórt safn íslenskra bóka og ljósmynda er nú varðveitt í Cornell.

Fiske minnismerkið í Grímsey. Mynd: María H. Tryggvadóttir

Fiske sigldi hringinn í kringum landið 1879, sá þá Grímsey tilsýndar og heillaðist af dugnaði og menningaráhuga íbúanna. Grímseyingar voru góðir skákmenn og þar sem Fiske var mikill áhugamaður um skák komst hann í bréfasamband við tvo menn í Grímsey. Þar með hófst vináttusamband hans við eyjarskeggja sem varði meðan hann lifði.

Árið 1901 færði Fiske Grímseyingum stórt bókasafn sem hann nefndi Eyjarbókasafnið. Það er nú varðveitt í bókasafni skólans í upprunalegum bókaskápum.

Í erfðaskrá sinni ánafnaði hann Grímseyingum veglegan peningasjóð, Grímseyjarsjóð Willard Fiske, til að endurbæta húsakostinn og bæta mannlíf í eyjunni og í þakklætisskyni voru nokkrir drengir í Grímsey skírðir eftir honum. Í eyjunni er minnismerki um Fiske er eftir Gunnar Árnason myndhöggvara og var gefið af Kiwanisklúbbnum Grími. Það var afhjúpað þann 11. nóvember 1998.