Fara í efni
Íþróttir

Ennþá til miðar á Akureyrarslaginn

Áhorfendur troðfylltu KA-heimilið í fyrri leik liðanna í september og það má líka búast má við hörkustemmningu í Höllinni á sunnudagskvöldið. Mynd: Ármann Hinrik.

Seinni Akureyrarslagur vetrarins í efstu deild Íslandsmótsins í handbolta karla, Olísdeildinni, fer fram á sunnudagskvöldið þegar Þór og KA mætast í Höllinni í 11. umferð mótsins. Viðureignin hefst klukkan 18 og miðasala er í fullum gangi. Eins og er þá er „montrétturinn“ norðan Glerár. því Þór vann fyrri leik liðanna í KA-heimilinu í september með 35 mörkum gegn 31.

Hins vegar hefur gengi KA hefur verið öllu betra en Þórs í fyrstu tíu umferðunum. KA hefur unnið sjö leiki og tapað þremur og situr í 3.-4. sæti deildarinnar ásamt Val. Þórsarar hafa hins vegar unnið þrjá leiki og tapað sjö og eru ásamt HK og Stjörnunni í 9.-11. sætinu.

Miðasala í Hamri og KA-heimilinu

Eins og ævinlega þegar þessi lið mætast verður hart tekist á og ómögulegt að segja til um hver úrslitin verða, í troðfullri Höllinni. KA hefur harma að hefna síðan í fyrri leiknum og frammistaða þeirra undanfarið hefur verið talsvert betri en þeirra úr Þorpinu. Engu að síður þarf að fara varlega í að telja KA sigurstranglegra liðið, því Þórsarar munu leggja allt í sölurnar til að halda montréttinum sín megin.

Miðum á leikinn fer fækkandi en stuðningsmenn félaganna geta ennþá nálgast miða í Hamri og KA-heimilinu. Athygli er vakin á því að ársmiðahafar þurfa líka að nálgast aðgöngumiða á leikinn. Ef einhverjir miðar verða eftir á leikdegi munu þeir vera seldir við innganginn en þó er vissara að tryggja sér miða í forsölunni.