Mannlíf
Elstu blágrenitré landsins 120 ára í sumar
04.06.2025 kl. 10:30

Danski skógfræðingurinn Christian E. Flensborg dvaldist á Íslandi öll sumur frá 1899 til 1906 og lagði grunn að trjá- og skógrækt víða um land. Enn eru víða til tré sem Flensborg kom í jörðu. Þar á meðal eru fyrstu blágrenitrén sem hann plantaði á Íslandi. Þeim var plantað í Mörkina á Hallormsstað vorið 1905. Því eru liðin 120 ár frá því fyrsta blágreninu, Picea engelmannii, var plantað á Íslandi.
Sigurður Arnarson fjallar í pistli dagsins í röðinni Tré vikunnar um blágreni. „Þetta er annar afmælispistill okkar um blágreni. Sá fyrri var almennt um tegundina en í þessum pistli skoðum við sögu blágrenis á Íslandi,“ segir Sigurður.
Meira hér: Blágreni á Íslandi