Fara í efni
Mannlíf

Eitt og eitt sjóarahúðflúr var kannski í lagi ...

„Manstu eftir Kalla á Kaldbak? Ég hitti hann í sundi um daginn. Bláleiti höfrungurinn sem hann lét húðflúra á upphandlegginn í Hull líkist nú mest strönduðum búrhval sem er farið að slá verulega í. Og gellan með háreistu brjóstin á hinum handleggnum má sannarlega muna sinn fífil fegurri.“

Aðalsteinn Öfgar virtist ekki í sunnudagaskólaskapi, segir Stefán Þór Sæmundsson í nýjum pistli, þegar hann ræddi um húðflúr þar sem þeir félagarnir rúntuðu um Eyjafjörðinn.

„Ég verð að viðurkenna að sjálfur er ég lítt hrifinn af húðflúrafarganinu – og enn síður eftir að ég komst að því hvað þetta kostar – en þori varla að segja það upphátt því þá verð ég ábyggilega sakaður um fordóma eða hatur á tilteknum einstaklingum,“ skrifar Stefán. „Fólk skilur ekki að ég get verið á móti tiltekinni iðju, s.s. reykingum, götun, húðflúrun, öfgatrúboði og þar fram eftir götunum en ég er ekki þar með sagt persónulega á móti einstaklingum er þetta stunda en sennilega er betra að leyfa Alla að láta dæluna ganga.“

Pistill Stefáns Þórs: Blásvartir og blautlega þenkjandi