Ég er fortíðin og á ekki að kjósa um framtíðina
Stefán Þór Sæmundsson er mættur til leiks á ný sem pistlahöfundur. Nú ræða þeir saman og skiptast á skoðunum, hann og Aðalsteinn Öfgar, áhugaverður karakter sem áður hefur komið við sögu í pistlum íslenskukennarans og rithöfundarins. Pistlaröðina kallar Stefán Þór einfaldlega Á spjalli með Aðalsteini Öfgar, og þar ber ýmislegt á góma sem hátt ber í umræðu dagsins, ef svo má segja.
Pistlar Stefáns Þórs birtast á akureyri.net á laugardögum, sá fyrsti í dag. Hann hefst þannig:
„Mikið óskaplega er ég feginn að þurfa ekki að taka þátt í þessum þjóðaratkvæðissirkus í lok ágúst. Ég get verið gjörsamlega áhyggjulaus og engin ástæða til að missa geðheilsu og svefn,“ sagði Aðalsteinn Öfgar þegar hann hringdi í mig um daginn. Einn af þeim fáu í kringum mig sem notar símann á þann hátt. En hvað er að heyra, ætlar hann ekki að nýta atkvæðisrétt sinn og taka þátt í lýðræðisveislunni? Flokkast þetta ekki undir vítavert ábyrgðarleysi?
Pistill Stefáns Þórs: Of gamall til að greiða atkvæði