Drift og Skógarböðin hefja samstarf
Drift EA og Skógarböðin hafa efnt til samstarfs sem miðar að því að efla nýsköpun á Norðurlandi og auka aðdráttarafl svæðisins fyrir fyrirtæki og teymi víðs vegar af landinu.
Fram kemur í fréttatilkynningu að samstarfið sé að nokkru leyti óhefðbundið, þar sem lögð er áhersla á sameiginlega markaðssókn og heildstæða upplifun. Markmiðið er að sameina vinnu, innblástur, tengslamyndun og vellíðan í einni heild þar sem þátttakendur geta bæði starfað og notið þess sem svæðið hefur upp á að bjóða.
Að sögn Sesselju Ingibjargar Barðdal, framkvæmdastýru Driftar EA, snýst verkefnið um að líta á Norðurland sem vettvang fyrir sköpun og þróun, en ekki eingöngu sem ferðamannastað. Með samstarfinu við Skógarböðin sé hægt að bjóða upp á upplifun þar sem nýsköpun og tengsl við náttúru og samfélag fari saman.
Með verkefninu vilja Drift EA og Skógarböðin laða að fyrirtæki, rannsóknar- og þróunarteymi sem og stjórnendahópa sem vilja stíga út úr daglegu umhverfi og finna nýjan innblástur. Áhersla er lögð á að skapa aðstæður þar sem teymi geta unnið í skapandi umhverfi og jafnframt tengst atvinnulífi og nýsköpun á svæðinu.
Kjartan Sigurðsson, framkvæmdastjóri Skógarbaðanna, segir samstarfið falla vel að framtíðarsýn fyrirtækisins um að bjóða upp á upplifanir sem hafi dýpri merkingu og langtímagildi. Hann bendir á að tækifæri felist í því að laða að öflug teymi sem leiti nýrra leiða til að þróa hugmyndir sínar.
Samstarfið er liður í að styrkja Norðurland sem svæði þar sem nýsköpun, atvinnulíf og lífsgæði mynda sterka heild og skapa grundvöll fyrir áframhaldandi vöxt.