Fara í efni
Mannlíf

Bronsgrænn Chevrolet á kosningadagsmorgni

Mjótt var á munum Sjálfstæðis og Framsóknar í bæjarstjórnarkosningum bernskunnar. Réðu flokkar þessir lögum og lofum í Akureyrarpólitíkinni undir stjórn Jóns Sólness bankastjóra og Jakobs Frímannssonar kaupfélagsstjóra enda stuttir og sverir þeir höfðingjar.

Þannig kemst Jóhann Árelíuz að orði í upphafi kafla dagsins úr Eyrarpúkanum, bókinni sem Akureyri.net birtir einn kafla úr á hverjum sunnudegi.

Einn kosningadagsmorgun með sól í heiði varð mér litið út um herbergisgluggann og sá hver bronsgræn Chevrolet Impala-bifreið, A 41, renndi makindalega í hlað Lönguvitleysunnar. Þar bjó Styrmir Hólmdal með grannri konu og sjö pottormum í einu og hálfu herbergi.

Snaraðist snöggklipptur bankamaður úr bílnum græna, knúði dyra og hvarf í hreysið. Eftir drykklanga stund birtust þeir bræður Bjartur og Styrmir óstyrkir á lörfunum og voru studdir útí bíl.

Pistill dagsins: Kosningadagur

Eyrarpúkinn tíður gestur á Akureyri.net