Botnlaus mýri svo Þór varð frá að hverfa
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 125
Miklar framkvæmdir eru hafnar við Miðholt vegna fimm þriggja hæða fjölbýlishúsa sem þar eiga að rísa. Spölkorni sunnar voru byggð tvö mun hærri fjölbýli fyrir nokkrum árum og standa þau við Undirhlíð. Fyrir margt löngu stóð til að íþróttafélagið Þór fengi aðstöðu á þessum slóðum, um miðjan sjöunda áratuginn tók formaður félagsins fyrstu skóflustungu þegar gera átti malarvöll á svæðinu en ekkert varð úr. Myndin er tekin daginn sem skóflustungan var tekin.
„Það hefur verið 1965 sem við fengum svæði fyrir austan Hörgbárbraut og þar tók ég fyrstu skóflustunguna 16. október. Þetta svæði var hins vegar ekkert nema botnlaus mýri og við urðum að gefast upp þar. Við grófum þarna heilmikið til þess að reyna að þurrka svæðið en það var vonlaust verk,“ segir Haraldur Helgason, sem var formaður Þórs frá 1960 til 1980, í bók sem gefin var út árið 1985, á 70 ára afmæli félagsins.
Þórsarar fengu nokkrum árum síðar úthlutað núverandi félagssvæði vestan Melgerðisáss, steinsnar norðan við Glerárskóla. Þar gerði félagið sér malarvöll sem tekinn var í notkun 1975 og fyrsti grasvöllurinn varð að veruleika 1980.
Myndin er tekin 16. október 1965, Haraldur Helgason er með skófluna en augljóst að verkinu hefur verið haldið áfram þegar í stað með stærri skóflu, vélknúinni. Nokkrir þekktir Þórsarar eru á myndinni auk Haraldur, sá sem þetta skrifar þekkir þá en nefnir ekki að sinni – lesendur mega gjarnan skemmta sér við að nafngreina viðstadda og senda upplýsingarnar á netfangið skapti@akureyri.net. Góða skemmtun!