Fara í efni
Menning

Blátt höfuð fékk mig til að trúa á Guð

AF BÓKUM – 70

Starfsfólk Amtsbókasafnsins á Akureyri segir lesendum Akureyri.net alla þriðjudaga frá bók eða bókum. Það vekur vonandi athygli á bókakosti safnsins, þar sem af nógu er að taka, og glæðir áhuga sem flestra á bóklestri.
 

Í dag skrifar Þorsteinn Gunnar Jónsson_ _ _

Ísak Hilmarsson og Gréta María Birgisdóttir eru manneskjur sem ég þekki ekki neitt persónulega. En ég setti mig í samband við þau í nóvember 2019 vegna verkefnis sem ég varð mjög hrifinn af. Það átti að safna saman sögum frá feðrum varðandi fæðingar barnanna þeirra. Þau segja sjálf frá tilurð bókarinnar í formála en í stuttu máli þá ákvað ég að senda þeim póst ... ég vildi segja mína sögu.

Það var ekki kominn útgefandi að bókinni, ég gerði mér grein fyrir að einhver tími gæti liðið þar til maður sæi afraksturinn en ekkert gerðist í langan tíma. Ég var farinn að halda að bókin kæmi aldrei út. En þetta er eljufólk greinilega og sex árum síðar leit Fæðingarsögur feðra: reynslusögur frá íslenskum feðrum dagsins ljós.

Um sextíu feður segja sína sögur og allir eru nafnlausir. Fæðingarárs föðurs er getið ásamt fæðingarárum barnanna - sem og fæðingarstað. Ég viðurkenni að ég hef lesið mína sögu nokkrum sinnum og svo sá ég í eftirmála eftir Jónínu Riedel, að hún hafði skrifað BA-ritgerð í félagsfræði, „Easier said than done“, sem kom út í júní 2021 og þar var setning frá mér. Á þeim tíma voru komnar rúmlega 30 sögur og fjöldinn því næstum tvöfaldast áður en hún kom út í fyrra.

Feðurnir fengu frjálsar hendur og frásagnarmátinn er skemmtilega mismunandi. Ég viðurkenni fúslega að hafa tárast yfir nokkrum sögunum því sumir foreldrarnir þurftu að ganga í gegnum ótrúlega mikla erfiðleika áður en fæðing barnsins þeirra varð að veruleika. Ég táraðist líka yfir sögum af meðgöngum sem gengu mun betur. Fæðing er falleg og reynsla okkar feðra skiptir máli.

Inn á milli frásagnanna er stundum skotið inn fræðslukorni, til dæmis þegar verið er að tala um blátt höfuð barnsins, þá er það útskýrt. Sem og útvíkkun, keisaraskurð, sogklukku og fleira.

Þetta er afskaplega handhæg bók í kiljuformi og mér finnst að við feður ættum að eiga eintak af henni. Ekki vegna þess að það sé einhver skylda heldur vegna þess að þessar sögur eru skemmtilegar, átakanlegar og fræðandi. Þær hjálpa og þrátt fyrir að sextíu sé ekki gífurlega há tala, þá má finna þarna aðstæður sem verðandi feður gætu haft gagn af því að lesa. Góðar líkur á að einhver hafi gengið í gegnum það sama.

Fæðingarstaðirnir eru fjölbreyttir en ef ég hef talið rétt, þá eru fjórar sögur af sextíu tengdar sjúkrahúsinu á Akureyri. Og verkefnið heldur áfram ... höfundarnir bjóða feðrum að senda fæðingarsögur í netpósti. Það er fallegt að láta í sér heyra.

Viltu skyggnast inn í hugarheim feðra þegar kemur að fæðingum barna þeirra? Þá skaltu endilega lesa þessa bók. Kæru Ísak og Gréta - takk fyrir mig. Bókin ykkar er yndisleg!