Fara í efni
Íþróttir

Björk og Óskar Páll leiða í meistaraflokki

Björk Hannesdóttir lék best í meistaraflokki kvenna á fyrsta keppnisdegi Akureyrarmótsins og lét það ekki trufla sig í upphafshögginu á fyrsta teig þó að „vallarstarfsmaður“ væri að störfum fyrir framan hana. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Keppni á Akureyrarmótinu í golfi hófst í morgun og lýkur á laugardaginn. Eftir fyrsta keppnisdag af fjórum er Björk Hannesdóttir með forystuna í meistaraflokki kvenna og Óskar Páll Valsson leiðir karlaflokkinn. Mjótt er á mununum og líklegt að einhverjar sviptingar eigi eftir að eiga sér stað áður en yfir lýkur á laugardag.

Alls eru 178 kylfingar skráðir til leiks að þessu sinni og skiptast niður í nokkra flokka eftir forgjöf, auk þess sem keppt er í öldungaflokkum 50 ára og eldri og 70 ára og eldri. Flokkarnir leika ýmist fjóra daga eða þrjá.

Landslið Íslands í golfi eru að keppa á EM þessa dagana og því vantar nokkra sterka keppendur í meistaraflokkum á Akureyrarmótinu.

Í meistaraflokki kvenna eru þrír keppendur og þær Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Kara Líf Antonsdóttir eru skammt á eftir Björk að afloknum fyrsta keppnisdegi.

  • Björk Hannesdóttir 78 högg
  • Andrea Ýr Ásmundsdóttir 81 högg 
  • Kara Líf Antonsdóttir 83 högg

Í meistaraflokki karla eru 18 keppendur og ef marka má fyrsta keppnisdaginn verður keppnin hörkuspennandi allt til loka. Aðeins fimm högg skilja að Óskar Pál í 1. sæti og Val Snæ Guðmundsson í 13. sæti. Gríðarlega jöfn og spennandi keppni í uppsiglingu.

  • Óskar Páll Valsson 73 högg 
  • Patrik Róbertsson 74 högg 
  • Ragnar Orri Jónsson 74 högg 

Næstir á eftir þeim koma Tumi Hrafn Kúld og handknattleiksmarkvörðurinn góðkunni Ágúst Elí Björgvinsson á 4 höggum yfir pari.

Óskar Páll Valsson slær af fyrsta teig í morgun. Hann leiðir í meistaraflokki karla en margir kylfingar eru skammt undan. Mynd: Skapti Hallgrímsson.

Efst í öðrum flokkum

Í 1. flokki kvenna eru tveir keppendur og þar er allt í járnum eftir fyrsta daginn:

  • Ragnheiður Svava Björnsdóttir 86 högg
  • Embla Sigrún Arnsteinsdóttir 87 högg 

Fjórtán keppendur eru í 1. flokki karla. Efstu menn:

  • Þorsteinn Már Þorvaldsson 77 högg
  • Ingi Torfi Sverrisson 77 högg
  • Jón Svavar Árnason 79 högg
  • Gunnar Aðalgeir Arason 79 högg 

Í 2. flokki kvenna eru þrír keppendur.

  • Einrún Ósk Magnúsdóttir 96 högg
  • Ragnhildur Jónsdóttir 102 högg
  • Lísbet Hannesdóttir 104 högg

2. flokkur karla er mjög fjölmennur, alls 27 keppendur. Þrír eru efstir og jafnir:

  • Valdimar Þengilsson 82 högg
  • Guðni Þór Björnsson 82 högg
  • Sigurður Pétur Ólafsson 82 högg

3. flokkur karla er fjölmennasti flokkurinn í ár en þar eru 29 keppendur mættir til leiks: Efstu menn:

  • Ólafur Elís Gunnarsson 88 högg
  • Einar Ingimundarson 89 högg
  • Stefán Sigurður Hallgrímsson 89 högg

Níu keppendur eru í 4. flokki karla. Efstir að afloknum fyrsta keppnisdegi:

  • Stefán Bjarni Gunnlaugsson 100 högg
  • Snæbjörn Þ. S. Kjerúlf 100 högg
  • Maron Pétursson 102 högg

Í 5. flokki karla er leikin punktakeppni en ekki höggleikur og þar eru átta keppendur. Staðan í flokknum liggur ekki fyrir, því ekki eru skor allra keppenda komin inn á mótsvefinn.

Í öldungaflokki karla 70 ára og eldri eru ellefu kappar og efstir eru:

  • Heimir Jóhannsson 76 högg
  • Guðmundur E. Lárusson 80 högg
  • Birgir Ingvason 88 högg

Þá er einnig keppt í flokki 14 ára og yngri og þar eru 9 keppendur skráðir til leiks en ekki er búið að skrá skor þeirra allra inn á mótavefinn.

Heildarstöðu í öllum keppnisflokkum má sjá á þessari síðu.

Keppni á Akureyrarmótinu verður fram haldið á golfvellinum að Jaðri á morgun og eru allir velkomnir þangað til að fylgjast með bestu kylfingum Akureyrar etja kappi.