Björgvin Birgisson
Lífið tengir okkur saman á ýmsa vegu. Ég heyrði Jónu, fóstursystur mína fyrst tala um Björgvin, sem vin hans Nonna, bróður Gunnhildar. Þeir voru ýmislegt að bralla saman, meðal annars í skátunum. Ekki leið á löngu þar til hann var orðinn kærastinn hennar Gunnhildar. Það var gaman að fylgjast með þeim turtildúfunum þegar þau voru að hefja sinn búskap, svo samtaka og húsleg bæði tvö.
Við Gunnhildur höfum þekkst frá því hún fæddist. Mamma mín átti þátt í að ala Jónu, mömmu hennar upp, Jóna passaði mig og ég passaði svo Gunnhildi og Nonna. Við Jóna erum báðar að miklu leyti aldar upp í Helgafelli í Svarfaðardal og erum því hluti af Helgafellsstelpunum. Þannig má því segja að við Gunnhildur séum tengdar fjölskylduböndum. Ég átti heima á Dalvík þegar Björgvin hóf nám í Stýrimannaskólanum þar. Á þeim árum voru þau Gunnhildur tíðir gestir hjá okkur í Ægisgötunni, við áttum áttum margar góðar stundir eldhúsborðið. Björgvin átti létt með að spjalla. Þau Gunnhildur voru oft að tala um nýjustu áform sín varðandi heimilið og heimilishaldið og svo komu börnin. Það munar bara ári á þeirra elsta barni, Láru Jónu og yngri dóttur okkar. Barnastússið tengdi okkur enn frekar saman.
Björgvin hafði áhuga á öllu því sem viðkom matargerð og heimilishaldi. Þær frænkur mínar, Helgafellsstelpurnar voru alveg dolfallnar yfir þessum húslega manni sem hún Gunnhildur var búin að ná sér í. Það var ekki nóg að Björgvin drægi björg í bú með veiðum á sjó og á landi. Hann gekk frá öllum afla sem haganlegast fyrir þau Gunnhildi. Eins var það með sláturgerðina, og annan stærri matartilbúning, þar var Björgvin algjörlega ómissandi. „Ég bíð bara eftir að Björgvin komi í land“, sagði Gunnhildur og brosti sínu blíðasta. Það sem mér fannst einkenna Björgvin var hversu traustur og rólegur hann var. Hann hafði góða nærveru, svo blátt áfram og einlægur. Aldrei skorti umræðuefnin. Fjölskyldan og heimilið voru gjarnan efst á baugi og svo komu áhugamálin. Þar var af nógu að taka. Ég er viss um að Björgvin nýtur þess nú að geta bæði siglt og hjólað á ný. Elsku Gunnhildur og fjölskylda megi dýrmætar minningar um hann Björgvin ykkar létta ykkur sorgina.
Hulda Steingrímsdóttir
Björgvin Birgisson
Steingrímur Björnsson
Steingrímur Björnsson
Steingrímur Björnsson