Fara í efni
Íþróttir

Bjarni Ófeigur til KA frá Minden – semur í þrjú ár

Mynd af vef KA

Handboltamaðurinn Bjarni Ófeigur Valdimarsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við KA. Hann er 25 ára, leikur í stöðu vinstru skyttu og er auk þess öflugur varnarmaður, segir á heimasíðu félagsins. Þar segir að koma hans sé gríðarlegur liðsstyrkur fyrir komandi tímabil.

Bjarni Ófeigur leikur í vetur með GWD Minden í næstu efstu deild í Þýskalandi „þar sem hann er í lykilhlutverki en hann gekk í raðir Minden fyrir núverandi tímabil. Þar áður lék hann í þrjú ár með sænska stórliðinu IFK Skövde en Bjarni lék ákaflega vel með sænska liðinu þar sem hann var í hópi bestu manna liðsins öll þrjú tímabilin en liðið lék meðal annars tvívegis til úrslita um sænska meistaratitilinn, árin 2021 og 2022.“

Bjarni var á sínum tíma fastamaður í yngri landsliðum Íslands og var kallaður inn í íslenska landsliðshópinn á Evrópumeistaramótinu í Ungverjalandi árið 2022.

„Mér líst ótrúlega vel á að fá Bjarna norður og mjög spenntur að vinna með honum. Þetta er leikmaður á besta aldri og er öflugur á báðum endum vallarins þannig að já, ég er mjög spenntur að vinna með honum,“ segir Halldór Stefán Haraldsson þjálfari KA á heimasíðu félagsins.

„Ég er handviss um að hann mun koma flottur inn í það verkefni sem við erum að vinna hér í KA með okkar unga lið. Ég hef bara heyrt góða hluti af Bjarna, hann æfir mjög vel og er með gott hugarfar. Hann mun hjálpa ungu strákunum okkar, hefur verið að spila sem atvinnumaður og veit hvað þetta snýst um. Þannig að við bindum miklar vonir við komu hans hingað norður,“ segir þjálfarinn.

Einnig er rætt við Bjarna Ófeig sjálfan: „Ég er ótrúlega spenntur að taka slaginn með KA næstu árin þar sem að ég hef bullandi trú á þessu liði og KA sem félagi. Hlakka til að mæta norður og spila í gulu treyjunni, áfram KA!“

Nánar hér á heimasíðu KA.

VIÐBÓTHandbolti.is upplýsir að áður en Bjarni Ófeigur fór til IFK SKövde haustið 2020 hafði hann leikið með FH og Val í Olísdeildinni en einnig með Selfossi á yngri árum.