Bikar, blómvöndur og tvö töp fyrir liði ÍBV
GAMLA ÍÞRÓTTAMYNDIN – 124
Knattspyrnulið Íþróttabandalags Akureyrar (ÍBA) og Íþróttabandalags Vestmannaeyja (ÍBV) mættust tvo daga í röð á Akureyrarvelli haustið 1972; laugardag 30. september og sunnudag 1. október. Fyrri leikurinn var liður í bikarkeppni KSÍ en sá síðari var bæjakeppni en slíkir leikir voru nokkuð algengir á árum áður. Skemmst er frá því að segja að Eyjamenn unnu báða leikina; bikarleikurinn endaði 3:0 en seinni viðureignin 5:4.
- ÍBA sigraði árið 1972 í 2. deild, næst efstu deild Íslandsmótsins. Myndin er tekin fyrir bikarleikinn þegar Eyjamenn óskuðu Akureyringum til hamingju með deildarmeistaratitilinn með því að færa þeim blómvönd. Þormóður Einarsson fyrirliði ÍBA er til vinstri en fyrirliði ÍBV er Ólafur Sigurvinsson. Dómatríóið skipuðu, frá vinstri, línuverðirnir Róbert Jónsson og Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson og dómarinn Hinrik Lárusson. Eftir bikarleikinn afhenti Jón Magnússon varaformaður KSÍ Þormóði fyrirliða ÍBA svo bikar fyrir sigur í 2. deildinni.
Til gamans má geta þess að Ásgeir Sigurvinsson (bróðir Ólafs fyrirliða), að margra mati besti knattspyrnumaður Íslands, tók þátt í báðum leikjum og skoraði eitt mark seinni daginn, í bæjakeppninni. Þetta voru einu leikir Ásgeirs á Akureyrarvelli, a.m.k. í meistaraflokki.
Ásgeir var 17 ára og hélt utan í atvinnumennsku árið eftir. Hann náði þó að leika einu sinni gegn ÍBA á Íslandsmótinu það ár og gerði þá eitt mark, þegar Eyjamenn unnu Akureyringa 4:0 í Njarðvík (þar sem heimaleikir ÍBV fóru fram vegna eldgossins sem hófst í Eyjum í janúar þetta ár).
ÍBV varð bikarmeistari 1972, vann FH 2:0 í úrslitaleik keppninnar á Melavellinum í nóvember.