Bernharð Haraldsson

Í dag verður Bernharð Haraldsson, fyrrverandi skólameistari Verkmenntaskólans á Akureyri, kvaddur frá Akureyrarkirkju.
Hann var fyrsti kolleginn sem ég leitaði til eftir að ég hafði verið ráðinn skólameistari Laugaskóla í Reykjadal haustið 1994. Mér hafði verið falið það hlutverk að stjórna einum minnsta framhaldsskóla landsins og þótti mér það bæði fyrirkvíðanlegt og spennandi. Ég hafði fylgst með fréttum sem birtust um starfsemi VMA frá því að hann var stofnaður 1984, bæði vegna nafnsins og hins göfuga hlutverks sem honum var ætlað. Engu að síður voru það einkum orð og skoðanir skólameistarans sem vakið höfðu athygli mína þegar hann kom fram fyrir hönd skólans við ýmis tækifæri. Þegar ég stóð frammi fyrir viðfangsefnum og ákvörðunum er tengdust stefnumótun og mannauðsmálum míns litla en gamalgróna skóla hafði ég stundum samband við Benna. Mér er minnisstætt hvað hann tók mér vel og þótti eflandi að finnast sem hann ræddi ávallt við mig sem jafningja.
Hvetjandi viðmót hans og ráðgjöf voru jafnuppörvandi þegar ég tók við lyklunum að skrifstofu hans fimm árum síðar. Vegna heilsubrests þurfti Benni að hætta störfum fyrr en hann ætlaði en hann tók því af æðruleysi, kom oft í kaffisopa og studdi eftirmann sinn fyrstu sporin „på sin lumske måde“ og ævinlega eftir það. Við áttum ánægjulega endurfundi á 40 ára afmæli VMA síðastliðið haust. Blessuð sé minning hans.
Ragnheiði, börnum þeirra og fjölskyldu sendi ég samúðarkveðjur.
Hjalti Jón Sveinsson
Þrír skólameistarar VMA á 40 ára afmæli skólans á síðasta ári; Bernharð Haraldsson, Hjalti Jón Sveinsson og Sigríður Huld Jónsdóttir.


Bernharð Haraldsson

Bernharð Haraldsson – lífshlaupið

Ólafur Gísli Hilmarsson

Ólafur Gísli Hilmarsson
