Bærinn mun hafna því að fjarlægja hjörtun

Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, segist ekki skilja hvað Vegagerðinni gangi til með þeirri beiðni að rauðu hjörtun í umferðarljósum stofnunarinnar – á þeim gatnamótum í bænum sem heyra til þjóðvegi 1 – verði fjarlægð. Akureyri.net greindi frá beiðni Vegagerðarinnar í gær og viðbrögð voru gríðarleg.
Ásthildur skrifar á Facebook síðu sína:
„Hjörtun í rauðu umferðarljósunum eru eitt af einkennismerkjum Akureyrar, stór þáttur í ímynd bæjarins sem segir á svo táknrænan og fallegan hátt að hér viljum við taka á móti öllum með hlýju og kærleika. Ef ég á að segja alveg eins og er, þá bara skil ég ekki hvað Vegagerðinni gengur til og er ekki í vafa um að bæjaryfirvöld á Akureyri munu hafna því alfarið að fjarlægja hjörtun. Þau voru sett í umferðarljósin sumarið 2008 þannig að Vegagerðin hefur haft 17 ár til að fjalla um „þá ógn“ sem af þeim stafar! Kæra fólk, reynum nú að brosa með hjartanu og notum tímann í eitthvað þarfara en að vera með leiðindi út í hjörtun okkar!“
Fréttir Akureyri.net í gær: