Fara í efni
Mannlíf

Hvers vegna öll þessi rauðu hjörtu?

Margrét Blöndal fjölmiðlakona – konan á bak við rauðu hjörtun í götuvitum Akureyrar.

Frétt Akureyri.net í dag þess efnis að Vegagerðin vilji láta fjarlæga rauðu hjörtun úr nokkrum umferðarljósum á Akureyri vakti gríðarlega athygli. Mörgum finnst hjörtun orðin nokkurs konar tákn bæjarins en hvers vegna er rauða stopp-táknið hjartalaga á Akureyri? Hafa hjörtun verið lengi í akureyrskum götuvitum?

Það er fjölmiðlakonan Margrét Blöndal sem ber ábyrgð á öllum rauðu hjörtunum. „Þetta var hrikalega gaman. Og skemmtilega galið!“ sagði Margrét þegar hún rifjaði það upp fyrir rúmum tveimur árum í viðtali við Akureyri.net hvernig það kom til að hinum hefðbundna, rauða hring var skipt út fyrir hjarta.

„Þannig var að ég var beðin um að stýra verslunarmannahelginni á Akureyri sumarið 2008. Árin á undan hafði mikið gengið á – mikil unglingadrykkja og alls konar deilur milli viðburðahaldara og sveitarfélagsins, löggan var ósátt og eiginlega bara allir sem höfðu komið að þessu,“ sagði Margrét.

Hún sagði það hafa legið ljóst fyrir að breyta yrði um taktík þegar þarna var komið sögu: „Við vildum og urðum að koma þeim skilaboðum á framfæri að þetta ætti að vera elskuleg hátíð þar sem gestir kynnu að haga sér.“

Nánar hér, þar sem Margrét rifjar upp hvernig þetta kom til:

Frétt Akureyri.net í dag: