Bæjarráð jákvætt fyrir vínveitingaleyfi til KA

Bæjarráð Akureyrar veitti í gær jákvæða umsögn vegna umsóknar Knattspyrnufélags Akureyrar um vínveitingaleyfi í KA-heimilinu. Ferlið er þannig að félagið sækir um leyfi til Sýslumanns sem leitar umsagnar ýmissa aðila áður en leyfi er veitt eða hafnað eftir atvikum.
KA sækir um „rekstrarleyfi veitinga í flokki II“ eins og það heitir en í lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald eru staðir í flokki II útskýrðir svona: „Umfangslitlir áfengisveitingastaðir þar sem starfsemin er ekki til þess fallin að valda ónæði í nágrenninu, svo sem með háværri tónlist, og afgreiðslutími er ekki lengri en til kl. 23 og kalla ekki á mikið eftirlit og/eða löggæslu.“
Íþróttafélög fá gjarnan tímabundið vínveitingaleyfi vegna ákveðinna viðburða en leyfið sem KA sækir um núna er ótímabundið.
Í fundargerð bæjarráðs frá því í gær segir:
„Lagt fram erindi frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra dagsett 19. september 2024 þar sem óskað er eftir umsögn Akureyrarbæjar vegna umsóknar um rekstrarleyfi veitinga í flokki II frá Knattspyrnufélagi Akureyrar.“
Þar segir einnig:
„Bæjarráð samþykkir að veita jákvæða umsögn til sýslumanns vegna umsóknar Knattspyrnufélags Akureyrar um rekstrarleyfi veitinga í flokki II í KA-heimilinu v Dalsbraut, með eftirtöldum skilyrðum:
1. Veiting áfengra drykkja fari fram innan lokaðs rýmis þar sem samþykktir aðaluppdrættir frá 26. júní 2013 sýna félagsaðstöðu.
2. Aðgangur að rýminu miðist við 20 ára aldur.
3. Óheimilt er að fara með áfenga drykki á áhorfendasvæði.
Bæjarráð minnir á að nauðsynlegt er að jákvæð umsögn liggi fyrir frá byggingareftirliti, eldvarnareftirliti, heilbrigðiseftirliti, Vinnueftirliti og lögreglu.“
Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, bæjarfulltrúi Vinstri grænna og áheyrnarfulltrúi í bæjarráði, lét bóka eftirfarandi:
„Ég tel hið mikilvæga forvarnarstarf íþróttafélaga og áfengissala á íþróttakappleikjum ekki fara saman. Helstu rök fyrir eflingu íþróttastarfs og auknu fjármagni til starfseminnar er mikilvægt forvarnargildi íþróttastarfs, það er því alvarlegt ef staðreyndin er sú að áfengissala sé orðin mikilvægur tekjustofn í rekstri íþróttafélaga.“