Fréttir
Ásthildur hættir sem bæjarstjóri
20.05.2026 kl. 14:53
Ásthildur Sturludóttir hættir sem bæjarstjóri á Akureyri um næstu mánaðamót. Hún tilkynnti þetta á Facebook síðu sinni rétt í þessu.
Sjálfstæðisflokkur, L-listi og Framsókn hafa náð samkomulagi um meirihlutasamstarf í bæjarstjórn eins og akureyri.net greindi frá fyrr í dag – sjá hér – og nær öruggt er að pólitískur bæjarstjóri taki við af Ásthildi, fulltrúi eins þessara þriggja framboða.
Pistill Ásthildar er svohljóðandi:
Um næstu mánaðamót læt ég af störfum sem bæjarstjóri Akureyrarbæjar eftir átta annasöm en afar ánægjuleg ár í embætti. Ég var ráðin af L-lista, Framsóknarflokki og Samfylkingu sumarið 2018 og kom mörgum á óvart að innmúraður Sjálfstæðismaður væri ráðinn til starfans. Við áttum hins vegar óaðfinnanlegt samstarf og komum fjölmörgu í verk á krefjandi tímum.
Við gerðum skipulagsbreytingar til þess að einfalda stjórnkerfi bæjarins sem hefur reynst vel. Við réðumst í bygging leikskólans Klappa, endurbyggingu Lundarskóla og hófum endurbætur á Glerárskóla, skipulögðum ný hverfi, byggðum nýjan búsetukjarna við Klettaborg og lögðum ríka áherslu á góða upplýsingagjöf til bæjarbúa. Við lögðum sömuleiðis drög að fjárhagslegri endurskipulagningu sveitarfélagsins. Skiluðum ríkinu hjúkrunarheimilunum sem var stærsta einstaka aðgerðin í því að ná fjárhagslegri sjálfbærni enda hafði bærinn borgað næstum hálfan milljarð með rekstrinum í langan tíma. Það var erfitt en að endingu náðist góð niðurstaða.
Og svo kom heimsfaraldur Covid-19. Það var gríðarlega krefjandi tími sem reyndi mjög á stjórnendur og samfélagið allt. Okkur tókst vel til. Við unnum saman sem einn maður að því að halda allri starfsemi í samfélaginu okkar gangandi þrátt fyrir takmarkanir.
Eftir kosningarnar 2022 var myndaður meirihluti Sjálfstæðismanna, L-lista og Miðflokks þar sem mér var áfram treyst fyrir bæjarstjórastólnum. Samstarf mitt við meirihlutann hefur verið framúrskarandi gott og við höfum náð miklum árangri í uppbyggingu bæjarins og margt er enn á döfinni.
Ný hverfi hafa verið skipulögð, íbúðahús rísa og nýi leikskólinn Hagasteinn í Naustahverfi hefur starfsemi í haust. Miklar endurbætur voru gerðar á Glerárskóla og ný leiksvæði við Síðuskóla, Oddeyrarskóla og Glerárskóla tekin í notkun. Lokið var við skipulag á nýju hafnarsvæði við Torfunef, nýr íbúðakjarni opnaður í Hafnarstræti16, ráðist var í glæsilega uppbyggingu á KA svæðinu, nýr knattspyrnuvöllur og undirbúningur við nýtt íþróttahús á Þórssvæðinu hafinn, og við sömdum um Blöndulínu svo fátt eitt sé nefnt. Við höfum þrátt fyrir þessa miklu uppbyggingu haldið rekstrinum í góðu lagi og hann hefur raunar batnað ár frá ári. Ekki má heldur gleyma að farið var í löngu tímabærar endurbætur á skrifstofum sveitarfélagins, bæði í Ráðhúsi og við Glerárgötu.
Verkefni sem snerta okkar yngstu og elstu íbúa standa alltaf nærri mínu hjarta. Á síðustu átta árum hafa tvær menntastefnur verið samþykktar og er innleiðing á þeirri seinni nýhafin. Nýju kerfi vegna leikskólagjalda hefur verið komið á, lýðheilsukort fyrir fjölskyldur og lýðheilsustyrkir til eldri borgara urðu að veruleika, og verkefnið Virk efri ár hefur verið eflt. Allt til þess auka lífsgæðin hér á Akureyri.
Þá var ný heimasíða tekin í notkun sem tilnefnd var til verðlauna sem besti opinberi vefurinn og verkefnið „þjónustan er málið“ var innleitt þar sem lögð er áhersla á framúrskarandi þjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Sú vinna hefur heldur betur skilað árangri og sannar árleg þjónustukönnun Gallup það.
Ennfremur hefur náðst góður árangur í verkefnum sem við höfum barist fyrir gagnvart ríkinu: Uppbygging flugvallarins og nýtt flughlað, ný heilsugæslustöð er komin í gagnið og fram undan er uppbygging á viðbyggingu við SAk en ég sat í dómnefnd í þeirri samkeppni. Og innan skamms verður nýtt hjúkrunarheimili við Þursaholt byggt og verður það töluvert stærra en lagt var upp með í byrjun. Auk þessa náði ég að klára samninga við ríkið vegna Vaðlaheiðarganga og Greiðrar leiðar á þann máta að sveitarfélagið fær í sinn hlut um 100 milljónir króna, eitthvað sem stóð til af ríkinu að hlunnfara okkur og aðra hluthafa um.
Ég er stolt af verkum mínum í því krefjandi umhverfi sem rekstur sveitarfélaga ávallt er. Það er mikið ábyrgðarhlutverk og krefjandi að stýra fyrirtæki sem hefur á að skipa tæplega 2.000 starfsmönnum og veltir rúmum 40 milljörðum árlega
Ég vil þakka öllum bæjarfulltrúum sem ég hef starfað með, sérstaklega þó oddvitunum Guðmundi Baldvin, Höllu Björk, Hildu Jönu, Heimi Erni, Elmu og Hlyni fyrir framúrskarandi samstarf og vináttu á þessum 8 árum sem og auðvitað öllum hinum bæjarfulltrúum sem ég hef starfað með. Allt er þetta mikið öndvegisfólk.
Mestar þakkir eiga þó skilið Hulda Sif aðstoðarmaður minn, Ragnar Hólm upplýsingafulltrúi, sviðsstjórarnir allir sem ég hef unnið með, Inga Þöll bæjarlögmaður og annað starfsfólk Akureyrarbæjar. Þið eruð einstök. Án ykkar hefði ekkert af þessum verkefnunum sem hafa verið unnin orðið að veruleika.
Í samfélaginu hér á Akureyri búa gríðarleg tækifæri og framtíðin er sannarlega björt ef bæjarstjórn, bæjarbúar og atvinnulífið sýna samstöðu og hafa til þess metnað að halda áfram uppbyggingu liðinna ára með það fyrir augum að gera gott betra og efla svæðisborgina okkar
Ég óska nýrri bæjarstjórn velfarnaðar í mikilvægum störfum og nýjum bæjarstjóra óska ég alls hins besta í flóknum verkefnum.
Takk fyrir mig.
Ps. Ég mun skila ráðhúsinu af mér nýmáluðu!