Almættið, Tónabúðin og rokk undir rústum

„Almættið var í dæmalausu stuði þegar það tók ákvörðun um að Tónabúðin yrði í einu rýminu í flunkunýrri verslunarmiðstöð á Akureyri, Sunnuhlíð, snemma í áttunni. Það sparaði mér aldeilis sporin enda þýddi þetta að ég þurfti ekki lengur að fara alla leið niður í miðbæ til að kaupa hljómplötur sem var eitt af mínum helstu áhugamálum meðan ég var að vaxa úr grasi. Nú gat ég bara rölt þessa örstuttu leið úr Smárahlíðinni yfir í Sunnuhlíðina, þess vegna á inniskónum.“
Þannig hefst Orrablót dagsins, pistill Orra Páls Ormarssonar, hins frábæra blaðamanns á Morgunblaðinu. Pistlar hans fyrir Akureyri.net birtast annan hvern föstudag.
Þrátt fyrir þessa upprifjun er Orri Páll allt í einu með lesendum í samtímanum; segir frá brasilísku þungarokkssveitinni Sepultura sem hélt tónleika í Reykjavík á dögunum. „Flest sem ég hef verið að segja ykkur frá í þessum blótum mínum átti sér stað fyrir mörgum áratugum. Jafnvel árhundruðum. Við erum að vísu á kolvitlausum stað á landinu en þetta Sepultura-ævintýri byrjaði samt allt á Akureyri. Eins og svo margt.“
Orrablót dagsins: Ber hinu íslenska pyttsamfélagi vel söguna