Fara í efni
Íþróttir

Aldarfjórðungur liðinn frá „markinu“

Mynd: Skapti Hallgrímsson

Mörgum er enn í fersku minni stórkostlegt mark Guðjóns Vals Sigurðssonar fyrir KA í oddaleik í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta á sínum tíma; segja mætti „markinu“ því það er einstakt að mati margra og kemur örugglega oft fyrst upp í hugann þegar orðið er notað. Sennilega ævintýralegasta mark sem KA-maður hefur skorað, og mikilvægt var það. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma og því framlengt, og það var eftir að framlengingin var liðin og Afturelding einu marki yfir að KA átti aukakast á „vonlausum“ stað. En það hafði engin áhrif á  „galdrakarlinn“ Guðjón Val, sem náði að jafna. KA vann svo leikinn og komst í úrslit.

Ótrúlegt en satt þá eru 25 ár síðan þessi eftirminnilegi leikur KA og Aftureldingar fór fram, laugardaginn 21. apríl árið 2001.

Sá sem þetta skrifar var með myndavélina í KA-heimilinu þann dag og myndasyrpa af markinu birtist í Morgunblaðinu. Guðjón Valur skaut boltanum hægra megin við vegginn, í gólfið með svo miklum snúningi að hann skaust í netið án þess að Reynir Þór markvörður næði að bregðast við.

Þetta er rifjað upp – og gamla íþróttamyndin birt á mánudegi en ekki laugardegi eins og vant er – í tilefni þess að undanúrslit Íslandsmótsins hefjast í dag þegar Valur og KA mætast í Reykjavík. Það er líka vel við hæfi vegna þess að téður Guðjón Valur, Gróttustrákur af Seltjarnarnesi sem kom til KA 19 ára að aldri 1998 og var þrjá vetur á Akureyri áður en hann hélt í atvinnumennsku í Þýskalandi, er að gera stórkostlega hluti sem þjálfari Gummersbach í efstu deild Þýskalands. Hann lék sem kunnugt er með nokkrum af bestu liðum heims á frábærum ferli, var kjölfesta í landsliði Íslands í fjöldamörg ár og fyrirliði lengi.

Allt um það; enn var jafnt eftir seinni framlengingu í viðureign KA og Aftureldingar og því var gripið til bráðabana. Það lið sem fyrr yrði til að skora stæði upp sigurvegari. 

Stefán Þór Sæmundsson lýsti lokakafla leiksins þannig í Morgunblaðinu:

Í seinni framlengingunni hafði KA frumkvæðið og staðan var 28:26 þegar rúmar 2 mínútur voru eftir. Þá varði Reynir Þór Reynisson tvívegis mjög vel og Gintaras [Savukynas] og Magnús Már [Þórðarson] jöfnuðu leikinn. Afturelding var með knöttinn í síðustu sókninni en þá varði Hörður Flóki [Ólafsson] frá Bjarka [Sigurðssyni]. Bráðabana þurfti því til að skera úr um það hvort liðið kæmist í úrslitin og Afturelding hrósaði happi þegar liðið vann réttinn til að byrja með boltann. Teningunum var kastað. Taugarnar þandar. Sókn Aftureldingar stóð í mínútu en vörn KA hélt. Heimamenn náðu boltanum, [Andrius] Stelmokas óð upp allan völl og Mosfellingar brutu á honum rétt utan vítateigs. Víti dæmt og það fór vel á því að hetja KAmanna í þessum leik, Guðjón Valur Sigurðsson, tryggði liðinu sigurinn með því að skora úr vítaskotinu.

Það var ekki að ósekju að Guðjón Valur var hylltur í leikslok; hann jafnaði í lok fyrri framlengingar eins og áður var lýst og gerði síðan sigurmarið af vítalínunni. Guðjón Valur gerði 13 mörk í leiknum, sjö af níu mörkum KA í framlengingunum og bráðabananum.