Fara í efni
Fréttir

Álagning dagsekta virðist engu skila

Honda og Mitsubishi úti í móa. Nú eru um það bil 40 bifreiðar á lóðinni í Ytra-Krossanesi. Myndir: Haraldur Ingólfsson.

„Þetta bara mistókst algerlega,“ segir Leifur Þorkelsson, heilbrigðisfulltrúi og framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra (HNE). Hann vísar hér til eins anga af stærra máli er varðar uppsöfnun númerslausra bifreiða innan bæjarmarkanna, þegar gerður var bráðabirgðasamningur milli Akureyrarbæjar og Auto ehf., án vitneskju og aðkomu Heilbrigðiseftirlitsins, um flutning og geymslu þeirra á lóð í eigu Akureyrarbæjar í Ytra-Krossanesi. Leifur frétti sjálfur af samningnum eftir að búið var að ganga frá honum.

Þetta er fyrri hluti umfjöllunar um þetta mál.

Á MORGUN: SKORTIR ÁHRIFARÍKARI ÚRRÆÐI TIL ÚRBÓTA


Innakstri um vegarslóða hefur verið lokað með keðju og skilti frá Öryggismiðstöðinni þar sem stendur að þar sé myndavélaeftirlit. Það er hins vegar auðvelt að aka hægra megin við skiltið inn á svæðið og sjáanlegt af bældu grasinu að það hefur verið gert. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Bráðabirgðasamningurinn um afnot af Ytra-Krossanesi gilti upphaflega til októberloka í fyrra, en var svo framlengdur með munnlegu samkomulagi til 15. maí. Þessi framlenging virðist engu hafa breytt. Heilbrigðisnefndin hefur bent á að bifreiðarnar séu margar hverjar í afar slæmu ástandi og af þeim stafi bæði mengunar- og slysahætta. Nefndin gerði í byrjun apríl kröfu um að bifreiðarnar yrðu fjarlægðar fyrir 1. júní – sem var í gær.

Flutningur bifreiðanna út í Ytra-Krossanes var hugsaður sem viðbrögð eða bráðabirgðalausn vegna fjölda númerslausra bifreiða innan bæjarlandsins í eigu Auto ehf. eða Sigurðar Þórs Ákasonar. Málið tengist einnig fjölda bifreiða á lóð að Hamragerði 15 sem og á athafnasvæði Auto ehf. að Setbergi á Svalbarðsströnd.

Geymdar steinsnar frá brotajárnsmóttöku

Eftir að samningurinn rann út átti Akureyrarbær að koma bifreiðunum í brotajárnsferli hjá Hringrás, en þær standa enn í Ytra-Krossanesi, líklega hátt í 40 bifreiðar. Til samanburðar við þann fjölda sem fluttur var í fyrrasumar má nefna að það sem af er þessu ári hafa starfsmenn Akureyrarbæjar og HNE límt viðvörunarmiða á 114 bifreiðar innan bæjarmarkanna, með áskorun til eigenda um fjarlægingu þeirra.

Söfnunarstaðurinn í Ytra-Krossanesi séður frá Krossanesbrautinni. Rétt aftan við þann stað þar sem ljósmyndin er tekin er ekið inn í söfnunarport Hringrásar. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Flutningur bifreiðanna út í Ytra-Krossanes var umdeildur og er líklega enn. Það skondna við staðarvalið er að móttökuport Hringrásar, sem tekur við ónýtum bifreiðum í brotajárnsvinnslu, er steinsnar frá söfnunarstaðnum og hafa bifreiðarnar því verið fluttar framhjá ætluðum lokaáfangastað til bráðabirgðageymslu á lóð bæjarins.

Rétt er að hafa í huga að skráningarskyld ökutæki án skráningarmerkja sem eru fjarlægð að loknum fresti sem eiganda hefur verið gefinn skulu geymd í vörslu viðkomandi sveitarfélags í 30 daga og síðan fargað hafi eigandi ekki vitjað þeirra og leyst út gegn greiðslu áfallins kostnaðar, svo sem dráttar- og geymsugjalda. Þessi frestur var áður 45 dagar en var styttur fyrir fáeinum árum.

Skemmdarverk, tjónamat og framlenging

Fljótlega eftir að þessum bifreiðum var komið fyrir í Ytra-Krossanesi fór að bera á skemmdarverkum og virðist sem það hafi síðan tafið áframhald málsins þar sem eigandinn hafi fengið frest til að meta tjónið. Þegar bráðabirgðasamningurinn rann út í lok október var því gert munnlegt samkomulag um framlengingu á afnotum af lóðinni til 15. maí. Sá frestur er liðinn, en enn standa bifreiðarnar á sama stað og áður, í sínu verra ástandi en við komuna þangað – og var það þó í flestum tilvikum slæmt fyrir.

Þegar tíðindamaður frá akureyri.net leit við í Ytra-Krossanesi um miðjan sunnudag var ekkert sem benti til að bifreiðarnar yrðu horfnar þaðan fyrir 1. júní. Ökutækin sem þarna standa eru í misjöfnu ástandi og sýnilegt á verksummerkjum, svo sem glerbrotum og fleiru, að mörg þeirra hafa orðið fyrir barðinu á skemmdarfýsn einhverra eftir að þau voru flutt á staðinn. Athygli vekur að þarna má sjá eina bifreið og eina kerru á númerum, en bæði tækin eru skráð „úr umferð“ samkvæmt bifreiðaskrá. 

Tvö ökutæki á svæðinu eru með númeri, en þó bæði skráð „úr umferð“ samkvæmt bifreiðaskrá. Myndir: Haraldur Ingólfsson.

Viðvarandi vandamál

Uppsöfnun númerslausra bifreiða innan bæjarmarkanna hefur verið viðvarandi vandamál í mörg ár og reglulega fjallað um málið á fundum heilbrigðisnefndarinnar. Þrátt fyrir áskoranir, áminningar og dagsektir virðist lítið sem ekkert hafa þokast í rétta átt. Velflestar þessara bifreiða tengjast sama einstaklingnum eða sama fyrirtækinu, Auto ehf. og eigendum eða forráðamönnum þess.

Eftir margra ára nær árangurslausar aðgerðir til að fækka númerslausum bifreiðum í bæjarlandinu ásamt tilraunum til að fá viðkomandi til að bæta umgengni á lóð í íbúðarhverfi á Akureyri og atvinnulóð á Svalbarðsströnd var gripið til þess í fyrrasumar að gera áðurnefndansamning til bráðabirgða milli Akureyrarbæjar og eiganda bifreiðanna um flutning þeirra og geymslu á lóð í Ytra-Krossanesi, sem er í eigu bæjarins. Akureyri.net fjallaði um málið í júní í fyrra.

Fíflunum verður ekki meint af nábýlinu við 40 misónýtar bifreiðar enda sterk jurt, fífillinn. Mynd: Haraldur Ingólfsson.

Á lóðinni í Hamragerði eru líklega á þriðja tug bifreiða og um tíma söfnuðust þær einnig upp í götunni sjálfri, en að Setbergi má samkvæmt loftmyndum á map.is og víðar telja þær í hundruðum. Sigurður Þór er þó ekki skráður til heimilis né heldur sem eigandi að Hamragerði 15. Hann er skráður forráðamaður Auto ehf. í fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra, en synir hans tveir, Birkir Freyr og Sigurður Áki, skráðir raunverulegir eigendur að 40% hlut hvor.