Fara í efni
Íþróttir

Áhugamálið orðið vinna eftir samning við Nike

Baldvin Þór Magnússon þegar hann var kjörinn íþróttamaður Akureyrar 2025 í byrjun þessa árs - og mynd af Instagram reikningnum þegar Baldvin tilkynnti um samninginn við Nike.

Hlauparinn Baldvin Þór Magnússon hefur gert samstarfssamning til þriggja ára við bandaríska íþróttavöruframleiðandann Nike og getur því einbeitt sér af fullum krafti að íþróttaferlinum án þess að hafa fjárhagsáhyggjur. Hann segist nú geta sagt að áhugamálið sé orðið að atvinnu. 

Baldvin tilkynnti um samninginn á Instagram um helgina og segja má að um snemmbúinn afmælisglaðning hafi verið að ræða; hlauparinn snjalli fagnar nefnilega 27 ára afmæli í dag, 7. apríl.

„Þetta hefur verið markmið mitt í nokkur ár, síðan ég útskrifaðist úr háskóla, að landa svona atvinnumannasamningi,“ segir Baldvin Þór við akureyri.net. Hann segist hafa getað stundað hlaup undanfarin ár með því að púsla saman styrkjum, samstarfi við fyrirtæki og vinningsfé, „en það gat aldrei gengið til lengri tíma. Ég hef þurft að taka ákvörðun um það á hverju ári hvort ég gæti haldið áfram að einbeita mér 100% að hlaupum.“

Baldvin er fæddur á Akureyri, hefur búið erlendis síðan hann var drengur og keppir hér heima fyrir Ungmennafélag Akureyrar. Hann var kjörinn íþróttamaður Akureyrar 2025. Fjölskylda Baldvins flutti til Bretlands þegar hann var fimm ára og síðan bjó Baldvin í Bandaríkjunum þegar hann stundaði nám í Eastern Michigan háskólanum og keppti fyrir hönd skólans.

Hann segir samninginn við Nike skipta sköpum. Samningurinn nær fram yfir næstu Ólympíuleika og tryggir það að ég get lagt allt í sölurnar til að verða eins góður og ég mögulega geta, að minnsta kosti næstu þrjú árin,“ segir hann við akureyri.net.
 

Baldvin Þór er fremsti hlaupari Íslands í dag. Hann á Íslandsmet í 1500 m, 3000m og 5000 m hlaupum á braut utanhúss, auk 5 km og 10 km götuhlaupum. Þá á Baldvin Íslandsmet innanhúss í 1500 m, 3000 m, 5000 m og 1 mílu hlaupum.


  • Baldvin hljóp fram í sviðsljósið snemma árs 2021; akureyri.net fjallaði fyrst um hann í mars það ár þegar Baldvin setti Íslandsmet í 3.000 metra hlaupi innanhúss, á lokamóti bandarísku háskólanna – NCAA. Hann var þá við nám í Eastern Michigan háskólanum.
  • Þá spurðu ýmsir, hver er hann þessi drengur? Svarið við því er að finna í þessari grein frá því í mars 2021:

Setti Íslandsmet í 3000 m hlaupi – hver er hann?