Fara í efni
Mannlíf

Aðalsteinn Öfgar: „Er ég kannski fjölmiðill?“

„Er ég kannski fjölmiðill?“ var það fyrsta sem valt upp úr Aðalsteini þegar ég sótti hann niður á Eyri. Leiðin lá út á Svalbarðsströnd. „Ég fór að pæla í þessu vegna þess að ég er alltaf að blaðra hér og sumir sem eru með hlaðvarp eða blogg eða eitthvað svoleiðis eru kannski skilgreindir sem fjölmiðlar og þurfa þá sjálfsagt að borga eitthvað eða… eða fá þeir kannski fjölmiðlastyrk? Ég væri alveg til í það,“ sagði hann ákafur.

Þannig hefst pistill Stefáns Þórs Sæmundssonar, þar sem hann er á spjalli með Aðalsteini Öfgar níunda laugardaginn í röð.

Þar sem ég er gamall fjölmiðlamaður, skrifar Stefán Þór, hugðist ég segja eitthvað gáfulegt um þróun fjölmiðlunar en ég komst satt að segja ekkert að.

„Nei, veistu, ég er búinn að kortleggja þetta rugl. Kannski ætti ég að koma mér í Kastljós,“ hélt Alli áfram og baðaði út höndunum þannig að ég fipaðist næstum við aksturinn. „Sko, það er allt að koma í ljós sem ég var búinn að segja og þeir sem töldu mig öfgafullan geta étið það ofan í sig. Ég sagðist vilja loka tikktokkinu, banna aðgang barna að samfélagsmiðlum, gefa þeim frí frá símanum og fá þau til að lesa, skrifa, tala saman, leika sér, vinna, skapa, deila og slást.“

„Slást?“ skaut Stefán inn í.

Pistill Stefáns Þórs: Að hverfa til einfaldleikans