Fara í efni
Mannlíf

Að koma fram við sjálfan sig eins og góðan vin

Guðrún Arngrímsdóttir fjallar í nýjum og mjög áhugaverðum heilsupistli um sjálfsumhyggju, sem felur m.a. í sér að koma fram við sig eins og maður kemur fram við góðan vin. „Að læra að staldra við og taka eftir eigin líðan, mæta sér með mildi og grípa sig í erfiðum aðstæðum,“ eins og hún orðar það. Að vera öryggisnet fyrir sjálfan sig.

Ef ekki núna, hvenær? spyr Guðrún; að taka ábyrgð á eigin heilsu og velferð með sjálfsumhyggju að leiðarljósi.

Það var í hópi kvenna á Sjálfsræktarhelgi sem Guðrún ræddi um sjálfsumhyggju. „Við ræddum um það af hverju við erum svona gjörn á að setja okkar þarfir aftarlega í forgangsröðina og sinna ekki grunnþörfum okkar. Það er hollt og fræðandi að sitja í hópi og ræða þessi mál því niðurstaðan er yfirleitt sú að við erum ekki ein um það að upplifa að vera að halda of mörgum boltum á lofti, gera aldrei nóg en samt of mikið og vera almennt þreytt,“ skrifar hún.

Guðrún og Hrafnhildar Reykjalín Vigfúsdóttur, eigendur Sjálfsræktar heilsumiðstöðvar á Akureyri, skrifa pistla fyrir akureyri.net sem birtast annan hvern þriðjudag.