Fara í efni
Minningargreinar

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Elsku langbesta uppáhaldsfrænka Sólveig Hulda okkar. Það var erfiðasti dagur lífsins míns þegar Reynir kom til mín og sagði mér frá því að þú værir farin. Satt best að segja erum við ekki enn farin að trúa þessu. Eins og ein góð kona skrifaði þá má dauðinn skammast sín fyrir að taka elsku Sólveigu Huldu frá okkur svona snemma.

Sólveig Hulda var öllum svo góð og enginn var betri við ömmu sína og nöfnu en Sólveig Hulda. Hún hugsaði um hana af natni og þær voru svo nánar, áttu einstaka vináttu allt þar til mamma dó. Mamma kenndi nöfnu sinni að prjóna og hekla, reyndar eins og flestum í fjölskyldunni, það lék allt á fingrum hennar.

Sólveig Hulda stundaði skíðagöngu með frændum sínum Kára og Helga og það var farið í margar skíðaferðir. Ein ferð stendur sérstaklega upp úr en það var þegar Sólveig Hulda, Jói og Kári fóru saman til Slóveníu og Austurríkis yfir jól og áramót. Þá voru þau níu saman, Sólveig Hulda var 13 ára, eina stelpan í hópnum. En hún lét sko finna fyrir sér, enda hörð sem nagli. Hún vann þá alla í sjómann, alla nema Kára sem vildi ekki taka þátt – sennilega vitandi að frænka hans myndi mala hann.

Sólveig Hulda var alla tíð mikið hjá okkur og vorum við svo þakklát fyrir það. Enda var sem við værum að eignast okkar fyrsta barnabarn þegar elsku Guðrún fæddist og svo komu Kolbrún og Eyrún svo dásamlegar á eftir. Sjálf var Sólveig Hulda einstök amma og sagði alltaf að hún ætti þrjú barnabörn, dætur Guðrúnar og Steinars og son Sigga og Alexöndru.

Við eigum svo margar góðar minningar sem munu ylja okkur um ókomna tíð. Það voru ófá matarboðin og veislurnar sem okkur var boðið til Sólveigar Huldu og Garðars og stelpnanna. Við fórum í fjölda margar útilegur og svo var það yndislega ferðin okkar til Tenerife. Sólveig Hulda var líka alltaf svo dugleg að vera í sambandi, hún hringdi reglulega bara til að athuga hvernig við hefðum það og hvort það væru ekki alveg örugglega allir hressir. Hún Sólveig Hulda var nefnilega svo góð í því að hugsa svo vel og fallega um alla.

Við vitum innst inni að amma þín og nafna tók þig í faðm sinn þegar þú fórst frá okkur. Við vitum líka að hún sendir okkur öllum sem syrgjum þig styrk og þá sérstaklega Garðari, stelpunum þínum, mömmu þinni og Reyni. Minning þín mun lifa áfram í hjörtum okkar allra um ókomna tíð.

Ástar- og saknaðarkveðja,

Sólveig og Jói

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Kári, Vera Kristín, Kristján Logi, Róbert Bragi og Karen Emilía skrifa
11. mars 2026 | kl. 22:00

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Friðbjörn Sigurðsson skrifar
10. mars 2026 | kl. 12:40

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Pétur Þór Jónasson skrifar
10. mars 2026 | kl. 09:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Elísabet Hlín Adolfsdóttir  skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Sonja Dröfn Helgadóttir skrifar
09. mars 2026 | kl. 20:30