Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
Elsku Sólveig Hulda er farin frá okkur alltof snemma og fyrirvaralaust. Falleg að innan sem utan, algjört hörkutól en á sama tíma svo blíð og góð.
Það var engin lognmolla í kringum Sólveigu Huldu, þar var stuð og það þurfti yfirleitt eitthvað að brasa. Það var Sólveig Hulda sem dreif alla í leiki, göngu eða í sund þegar við vorum í útilegu. Og það var líka hún sem var búin að skipuleggja þá næstu – hún var búin að bóka stað og gistingu fyrir þá sem vilja gista inni. Hún hugsaði alltaf um alla – og sennilega þess vegna sem hún var alltaf á þönum, það voru svo margir sem hún hlúði að á svo fallegan hátt. Þegar við vorum í innlögnum á Lyfja var hún alltaf mætt og passaði vel upp á frænda sinn og okkur hin líka. Hún var alltaf boðin og búin og vildi allt fyrir alla gera. Í einni innlögn okkar fyrir jól áttum við ekki að fá að útskrifast fyrr en eftir áramót því Kristján Logi þurfti sýklalyf í æð á átta tíma fresti. En okkar kona tók það ekki í mál, sá til að hann væri útskrifaður og mætti svo heim til okkar á átta tíma fresti öll jólin og fram yfir áramót til að gefa honum lyfin!
Það var ýmislegt skemmtilegt brasað saman, ótal hjóltúrar, útilegur og fórum nokkrum sinnum til Tenerife og þau Garðar heimsóttu okkur til Barcelona þegar við bjuggum þar. Í einni af okkar dásamlegu ferðum til Tene vildi Róbert helst ekkert borða nema McDonalds í öll mál en það var sko ekkert mál, Sólveig frænka var alveg boðin og búin að fara með honum 14 daga í röð á Makkarann þó svo að það væri sko ekki efst á hennar óskalista. Í lok þeirrar ferðar fannst frænku hún þurfa að dekra aðeins við Karen og keyptu þær sér töskur á flugvellinum til að skvísa sig aðeins upp fyrir heimferðina. Því Sólveig frænka var líka algjör skvísa.
En svo allt í einu er hún farin – rifin frá Garðari og stelpunum sínum sem hún dýrkaði meira en allt. Tvær ömmustelpur mættar og sú þriðja á leiðinni. Við vitum að þú átt eftir að vaka yfir þeim öllum en mikið er samt sárt að þú hafir ekki fengið að knúsa þær og leika við þær og þær hafi ekki fengið að kynnast þér, nema þá í gegnum okkur hin.
Það var enginn meiri Stebba-aðdáandi en Sólveig Hulda og við munum minnast þín um ókomna tíð í lögunum hans. Fjölskylduútilegan verður farin næsta sumar og þar munum við minnast þín og spila Stebba fyrir þig. Þú lifir áfram í minningum okkar, hlátrinum, gleðinni og ástinni sem þú gafst okkur öllum sem þig þekktum.
Við erum undir þínum áhrifum í dag og verðum áfram, enginn vafi er um það.
Saknaðarkveðja,
Kári, Vera Kristín, Kristján Logi, Róbert Bragi og Karen Emilía
Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
Sólveig Hulda Valgeirsdóttir