Fara í efni
Minningargreinar

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Okkur, samstarfsfólki Sólveigar Huldu Valgeirsdóttur í stjórn Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, var brugðið þegar okkur bárust fréttir af andláti hennar. Gat það virkilega verið að þessi unga og kraftmikla kona væri fallin frá? Við erum enn í dag að reyna að ná áttum.

Við, samherjar hennar í stjórn, höfum misst sterkan liðsmann. Sólveig var með sterka nærveru. Hún var ákveðin, lífsglöð og brosmild. Hún var hreinskiptin og óhrædd við að takast á við erfið verkefni og leysa úr málum. Með menntun sinni og starfsreynslu miðlaði hún mikilvægum sjónarmiðum í því stóra verkefni að veita þeim sem greinast með krabbamein og þeirra aðstandendum sem bestan stuðning og þjónustu. Til þess var hún tilbúin að gefa af sínum frítíma. Við sem eftir sitjum í stjórn munum halda starfinu áfram í anda Sólveigar Huldu.

Við sendum eiginmanni, dætrum og fjölskyldunni allri, sem og samstarfsfólki og vinum, okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Fyrir hönd Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis,

Pétur Þór Jónasson

Elías Þorsteinsson

Jóhann Hauksson skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Björgunarsveitin Týr skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 14:30

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Jón Birgir Guðmundsson skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 11:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Guðný Bára Jónsdóttir skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 06:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Halla Mjöll Stefánsdóttir skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 06:00