Fara í efni
Minningargreinar

Sólveig Hulda Valgeirsdóttir

Okkur setti hljóð er okkur bárust þær fregnir að elsku Sólveig Hulda okkar væri fallin frá.

Í okkar huga er hún hér enn, okkur finnst við heyra í henni, heyra hlátur hennar og sjáum hana fyrir okkur þeytast um gangana. Viljum líka að hún fari ekkert, verði alltaf á deildinni sinni og okkar sem hún lagði sál sína í að gera sem besta fyrir alla.

Sorgin umlykur allt, við göngum hljóð til verka þessa dagana, með elsku Sólveigu okkar í hjartanu. Við skulum reyna að halda áfram því góða og jákvæða starfi sem þú hefur byggt upp elsku Sólveig því við eigum þér svo margt að þakka.

Missir fjölskyldu og ástvina er ólýsanlegur og hugur okkar er hjá þeim. Við sendum þeim okkar innilegustu samúðarkveðjur.

Sólin hvarf skyndilega
á degi okkar kvenna
sem aldrei fyrr.
Sólin okkar var rösk til verka sem vængjaþytur
og svo glöð og hlý.
Sárt er að sakna en ljúft að minnast
þess er sér góðan orðstír getur.
Hafðu þökk fyrir allt og allt fallega Huldan okkar.
Blessuð sé minningin þín.
(HSK)

Kveðja

Starfsfólk lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri

Elías Þorsteinsson

Jóhann Hauksson skrifar
11. ágúst 2026 | kl. 06:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Björgunarsveitin Týr skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 14:30

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Jón Birgir Guðmundsson skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 11:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Þóra Guðrún Hjaltadóttir skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 06:00

Jón Gunnlaugur Sigurjónsson

Halla Mjöll Stefánsdóttir skrifar
06. ágúst 2026 | kl. 06:00