Sólveig Hulda Valgeirsdóttir
Í dag kveðjum við kæran félaga og eina af okkar bestu, Sólveigu Huldu Valgeirsdóttur.
Sólveig Hulda hafði stórt SA-hjarta, eins og við segjum gjarnan um þá sem eru alltaf tilbúnir að leggja félaginu okkar lið. Í rúm tuttugu ár var hún virkur og ómetanlegur þátttakandi í starfi hokkídeildar Skautafélags Akureyrar.
Á sínum tíma spilaði hún með meistaraflokki kvenna, sat í stjórn foreldrafélagsins og lagði hönd á plóg við stóra sem smáa viðburði innan deildarinnar. Hún var hokkímamma eins og þær gerast bestar – ekki aðeins dætra sinna heldur einnig allra þeirra sem voru samferða þeim.
Hún lét sér velferð okkar allra varða, bæði leikmanna og sjálfboðaliða. Með réttsýni, vökulu auga og sínum einstaka húmor benti hún á það sem betur mátti fara og það sem þurfti að huga að.
Sólveig var ávallt boðin og búin. Ef hún gat, vann hún á leikjum og skellti sér suður með kvennaliðinu í hlutverk heilbrigðisstarfsmanns. Það gerði hún ekki aðeins fyrir SA, sem skipaði svo stóran sess í hjarta hennar, heldur einnig utan lands með U18 landsliði kvenna. Þar áttu leikmenn sannarlega hauk í horni og gæðin voru vís – hvort sem þurfti faðmlag, eyra til að hlusta eða andlegan og líkamlegan plástur.
Það sama átti ekki síður við um okkur fullorðna fólkið. Ósjaldan minnti hún á: „Gamla, mundu að deila verkefnunum – þú mátt ekki kaffæra þig.“ Við vorum víst jafngamlar, „gömlurnar“.
Það er svo margs að minnast og svo margt að þakka fyrir. Það er ljóst að minningin um Sólveigu mun lifa áfram með okkur í höllinni – í ritaraboxinu, á bekknum og í ferðunum. Minningin um magnaðan félaga, hvetjandi, réttsýna og kraftmikla konu sem hafði djúp og góð áhrif á samferðarfólk sitt.
Elsku Garðar, Guðrún, Kolbrún, Eyrún, Soffía, Reynir, fjölskylda og vinir. Megið þið öll finna styrk til að takast á við sorgina og varðveita minningarnar um ykkar ástkæru Sólveigu Huldu í björtu ljósi.
F.h. Skautafélags Akureyrar
Elísabet Ásgrímsdóttir,
formaður hokkídeildar
Haukur Jóhannsson
Guðmundur Oddur Magnússon
Ingi Kristján Pétursson
Ingi Kristján Pétursson