Fara í efni
Minningargreinar

Páll Halldór Jónsson – lífshlaupið

Páll Halldór Jónsson var fæddur í Höfða, Glerárþorpi 28. maí 1939. Hann lést 23. mars 2026.

Foreldrar hans voru hjónin Jón Andrésson f. 1899, d. 1982 og Sigríður Róbertsdóttir f. 1906, d. 1982. Eldri bróðir Páls er Herbert Bárður Jónsson f. 13. desember 1936.

Eiginkona Páls er Kristín Sveinsdóttir f. 6. maí 1947 á Vopnafirði. Þau gengu í hjónaband 15. júlí 1966. Börn þeirra eru 1) Sveinn Torfi f. 4. janúar 1967, eiginkona hans er Brynhildur Smáradóttir f. 26. nóvember 1974. Börn þeirra eru Kristín f. 2001 og Viktor Smári f. 2006. 2) Sigríður Jóna f. 21. júní 1970. Barn hennar er Arna Dögg Arnarsdóttir f.1996, sambýlismaður hennar er Kristinn Ingólfsson f. 1996. Börn þeirra eru Birta Marý f. 2023 og Gísli Maron f. 2025.

Páll gekk í barnaskóla í Glerárþorpi og síðan í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Hann starfaði alla tíð sem skrifstofumaður, lengst af hjá Útgerðarfélagi Akureyringa en endaði starfsferil sinn hjá Hafnasamlagi Norðurlands. Páll var mikill Þórsari og spilaði fótbolta með félaginu og  Íþróttabandalagi Akureyrar (ÍBA), einnig spilaði hann bridds með góðum árangri. Hann var virkur í félagsmálum þar sem Félag verslunar- og skrifstofufólks á Akureyri og Framsóknarfélag Akureyrar fengu að njóta krafta hans.

Páll verður jarðsunginn frá Glerárkirkju í dag, þriðjudaginn 31. mars kl 10.00.

Eiður Baldur Sigþórsson

Sigþór Gunnar Eiðsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 17:00

Eiður Baldur Sigþórsson

Ásdís Rósa, Eiður Þór, Sigríður Rósa, Sölvi Hinrik og Tinna Björk skrifa
20. maí 2026 | kl. 17:00

Eiður Baldur Sigþórsson

Eydís Rósa Eiðsdóttir skrifar
20. maí 2026 | kl. 17:00

Birgir Ágústsson

Vilhelm og Skúli Ágústssynir skrifa
30. apríl 2026 | kl. 06:00

Jón Hólmgeirsson

Líney Snjólaug Diðriksdóttir skrifar
11. apríl 2026 | kl. 09:00

Jón Hólmgeirsson

Helena Kristín Brynjólfsdóttir og Brynjólfur Jón Brynjólfsson skrifa
10. apríl 2026 | kl. 12:30