Fara í efni
Minningargreinar

Páll Halldór Jónsson

Farinn er yfir móðuna miklu, góður félagi og mikill vinur okkar framsóknarmanna.

Palli, eins og hann var alltaf kallaður, var eðal framsóknarmaður af gamla skólanum, trúr sínum flokki og þótt hann væri ekki alltaf sáttur við það sem flokkurinn var að gera, reyndi hann alltaf að gera gott úr hlutunum, sá alltaf jákvæðar hliðar.

Það var ómetanlegt að hafa Palla á hliðarlínunni þegar kom að kosningum. Hann hafði alla hluti á hreinu og var óspar að spyrja, er þetta búið? eða er enginn að sinna þessu? Það að hafa svona mann sér við hlið í kosningabaráttunni var mörgum þeim sem voru að stíga sín fyrstu spor í pólitíkinni mikil reynsla.

Hann var aldrei með hávaða eða skammaði menn, heldur var alltaf þessi ljúfi maður sem vildi kenna og láta gott af sér leiða. Það var enginn duglegri að hafa samband við fólk og athuga hvort ekki væri möguleiki á að kjósa Framsókn.

Þau voru mörg flokksþingin og kjördæmisþingin sem hann sat fyrir hönd félagsins enda var hann einstakur félagsmálamaður.

Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis þakkar Palla fyrir alla þá vinnu og aðstoð sem hann veitti félaginu. Traustari félagsmann var ekki hægt að finna í okkar röðum.

Við munum sakna hans en minningin um hann lifir meðal okkar.

Við sendum Kristínu og fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur.

Félagar í Framsóknarfélagi Akureyrar og nágrennis

Eiður Baldur Sigþórsson

Sigþór Gunnar Eiðsson skrifar
20. maí 2026 | kl. 17:00

Eiður Baldur Sigþórsson

Ásdís Rósa, Eiður Þór, Sigríður Rósa, Sölvi Hinrik og Tinna Björk skrifa
20. maí 2026 | kl. 17:00

Eiður Baldur Sigþórsson

Eydís Rósa Eiðsdóttir skrifar
20. maí 2026 | kl. 17:00

Birgir Ágústsson

Vilhelm og Skúli Ágústssynir skrifa
30. apríl 2026 | kl. 06:00

Jón Hólmgeirsson

Líney Snjólaug Diðriksdóttir skrifar
11. apríl 2026 | kl. 09:00

Jón Hólmgeirsson

Helena Kristín Brynjólfsdóttir og Brynjólfur Jón Brynjólfsson skrifa
10. apríl 2026 | kl. 12:30