Fara í efni
Minningargreinar

Jón Ingi Cæsarsson

Sú harmafregn barst okkur jafnaðarmönnum í síðustu viku að einn helsti og besti máttarstólpi jafnaðarmanna á Akureyri og í NA kjördæmi, Jón Ingi Cæsarsson, hefði látist á hjartadeild Landspítalans 7. júní s.l. aðeins 72 ára að aldri.

Ég kynntist Jóni mjög vel þegar ég fór að kanna jarðveginn fyrir framboð mitt í hinu nýja stóra NA kjördæmi við kjördæmabreytinguna 2003, eftir að hafa verið fjögur ár þingmaður okkar jafnaðarmanna í NV kjördæmi.

Allar leiðbeiningar sem ég fékk frá vinum mínum um lykilfólk á Akureyri voru um Jón Inga sem ég sneri mér fyrst til og viðraði áhuga minn fyrir að flytja mig yfir í hið nýja NA kjördæmi sem heimabær minn, Siglufjörður, tilheyrði.

Það er skemmst frá því að segja að frá fyrsta hittingi okkar Jóns tókst með okkur traust, virðing og vinátta sem varað hefur alla tíð síðan.

Jón var mikill félagsmálamaður og kom víða við í félagsmálastörfum sínum. Þau félög sem nutu krafta hans voru heppin því allt sem Jón tók sér fyrir hendur leysti hann vel og samviskulega. Það eru varla til þau stjórnunarstörf í Samfylkingunni og áður Alþýðuflokknum á Akureyri og í kjördæminu sem hann hefur ekki gegnt. Formaður, ritari, gjaldkeri, formaður kjörstjórnar, kosningastjóri, nefndarmaður og húsvörður sem sá um vikulega fundi og veitingar á þeim. Við þessa upptalningu kemur best í ljós fórnfýsi hans og áhugi fyrir málstað okkar jafnaðarmanna.

Hér að ofan hef ég nefnt ýmislegt í störfum jafnaðarmannsins Jóns Inga og þykir vafalaust mörgum nóg um hin ýmsu félagsmálastörf hans fyrir jafnaðarmenn á Íslandi en öll þessi félagsmálastörf voru ekki hans einu störf eins og margir gætu haldið. Jón hóf ungur að árum störf hjá Pósti og síma, síðar Íslandspósti, og á þeim vettvangi var hann líka virkur í félagsstörfum. Hann sat í stjórn Póstmannafélagsins og var kjörinn formaður þess árið 2017 og gegndi formennskunni til ársins 2023 og tók þá við starfi í ritnefnd félagsins. Þegar það kom í minn hlut sem samgönguráðherra árið 2007 að skipa í stjórn Íslandspósts þá var það sjálfgefið að velja Jón Inga til setu í stjórninni og störfum í henni gegndi hann með mikilli prýði og af áhuga og líka yfirgripsmikilli þekkingu á starfseminni.

Ég kveð jafnaðarmanninn og vin minn Jón Inga Cæsarsson með þessu erindi:

Við eigum saman litla rauða rós,
og rósin er tákn um hugsun okkar og vilja.
Að bera hana er sama og láta í ljós
löngun til þess að hugsa, leita og skilja.
(HZ)

Ég sendi Guðrúnu eiginkonu hans og börnum mínar innilegustu samúðarkveðjur.

Góður vinur er genginn. Hafi hann hjartans þökk fyrir allt og allt.

Kristján L. Möller

Jón Ingi Cæsarsson – lífshlaupið

19. júní 2025 | kl. 08:30

Jón Ingi Cæsarsson

Stjórn Arfs Akureyrarbæjar skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Samfylkingin á Akureyri skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Logi Einarsson skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Jón Ingi Cæsarsson

Arnór Bliki Hallmundsson skrifar
19. júní 2025 | kl. 06:00

Kristján Snorrason

Birgir Snorrason skrifar
16. júní 2025 | kl. 06:00