Jón Hólmgeirsson – lífshlaupið
Jón Hólmgeirsson fæddist 15. apríl 1935 í Stafni í Reykjadal. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 3. apríl síðastliðinn.
Foreldrar hans voru Kristín Þorvaldsdóttir húsfreyja f. 6. des 1902, d. 24. ágúst 1985 og Hólmgeir Sigurgeirsson bóndi á Völlum í Reykjadal f. 14. des 1909, d. 23. apríl 1984.
Jón ólst upp á Völlum í Reykjadal, þar sem Hólmgeir faðir hans stundaði búskap. Á bæjum í Stafnshverfi stunduðu 5 af 8 bræðrum búskap, voru kallaðir Stöfnungar, og hefur ættin verið með búskap í Stafnslandi í yfir 200 ár. Átti Jón þar yndislegan uppvöxt í frjálsræði og ævintýraferðum. Hólmgeir faðir Jóns var natinn hestamaður og ólst Jón því upp í kringum hesta. Eftir að hann fluttist inn á Akureyri átti fjölskyldan hesthús og stundaði hestamennsku.
Systkini Jóns eru Hólmfríður f. 14. ágúst 1932 húsfreyja á Möðruvöllum í Eyjafirði, og Sigurgeir f. 27. maí 1939, d. 9. júní 2024, bóndi á Völlum.
Jón gekk í barnaskóla í Stafni og síðar á Laugum í Reykjadal. Hann flutti til Akureyrar árið 1957, fór í Iðnskólann á Akureyri, lærði húsgagnasmíði og lauk sveinsprófi 1962. Jón starfaði á Húsgagnaverkstæði Ólafs Ágústssonar með námi, stofnaði smíðaverkstæðið Fjarkann árið 1963, en flutti svo sín smíðaverkefni í bílskúrinn að Álfabyggð. Síðar vann Jón við kennslu í Oddeyrarskóla og Glerárskóla. Kennslan átti vel við hann og því ákvað Jón að fara í kennararéttindanám 46 ára, og kláraði endurmenntunarnám í Kennaraskólanum 1982. Hann starfaði við kennslu við Gangfræðaskólann og síðan við Verkmenntaskólann á Akureyri fram til 67 ára aldurs.
Á Akureyri kynntist Jón eiginkonu sinni Sigrúnu Kristínu Kristjánsdóttur frá Hæli í Torfulækjarhreppi, f. 30. maí 1937 d. 3. jan 1988. Þau giftu sig 22. des 1958. Jón og Sigrún eignuðust 3 börn; 1) Kristján Ingvar bóndi á Tréstöðum f. 4. ágúst 1959. Eiginkona hans er Líney Snjólaug Diðriksdóttir frá Hvanneyri f. 21. júlí 1966. Börn þeirra eru Sigrún Kristín, Diðrik og Snjólaug. 2) Þorbjörg Kristín rekstrarhagfræðingur í Reykjavík, f. 15. apríl 1962. Eiginmaður hennar var Brynjólfur Bjarnason f. 18. júlí 1946, d. 16. mars 2025. Börn þeirra eru Helena Kristín og Brynjólfur Jón, og stjúpbörn Þorbjargar eru Bjarni, Helga Birna, Kristjana og Birgir Örn, og 3) Hólmgeir f. 14. sept 1964 hrossabóndi í Hannover í Þýskalandi. Eiginkona hans er Nina Jonsson, f. 14. apríl 1971.
Jón og Sigrún bjuggu í Strandgötu 35, en fluttu með fjölskyldu sína í Álfabyggð árið 1966, í hús sem Jón byggði og þar bjó hann til dánardags.
Með námi við Kennaraskólann fór Jón í nám í tréútskurði, og naut þess í að kenna tréútskurð í yfir 37 ár. Hann hélt námskeið í félagsstarfi aldraðra í Hrísalundi og síðar í bílskúrnum í Álfabyggð. Jón var virkur í félagsstarfi, söng með Karlakór Akureyrar í yfir 25 ár og söng einnig með kirkjukór Bægisár og á Bakka. Síðar var hann virkur í Félagi eldri borgara á Akureyri.
Jón var heilsuhraustur og hausinn skýr til síðasta dags.
Eftirlifandi sambýliskona Jóns er Ada Elísabet Benjamínsdóttir, f. 4. apríl 1936.
Jón verður jarðsettur í kyrrþey að eigin ósk.
Páll Halldór Jónsson
Páll Halldór Jónsson
Páll Halldór Jónsson
Páll Halldór Jónsson