Jón Hólmgeirsson
Afi og Akureyri verða alltaf samofin í minningunum. Álfabyggð var húsið hans þar sem maður fann strax að allt var hlýlegt, heimagert og lifandi. Þar var ekkert flókið og ef eitthvað skildi vanta eða þurfti að laga, þá var það ekki vandamál. Afi einfaldlega smíðaði lausn.
Við systkinin vorum afar lánsöm að fá að heimsækja afa oft fyrir norðan, stundum jafnvel í lengri tíma, til dæmis yfir sumrin. Þá fékk maður að fylgja honum í hans daglega brasi og aðlagast hans lífsstíl. Hjá afa var einfaldleikinn ríkjandi, bæði í lífi og mat. Máltíðirnar voru oft grautur með rjóma og slátri eða kartöflur með fiski eða lambakjöti. Afi sparaði ekki við sig og fyllti diskana vel og undraðist svo þegar maður sat saddur og sprunginn. Þá kom gjarnan brosandi spurning „má ekki bjóða þér jógúrtkökur líka?“
Jógúrtkökurnar voru fastur liður. Það var eins og þær væru alltaf til, annaðhvort nýbakaðar eða í heilum pokum í frystinum, tilbúnar til að hita og njóta.
Á kvöldin, þegar róin færðist yfir og háttatíminn nálgaðist, tók afi fram bókina um Stein Bollason og las fyrir okkur. Það var gert hvert einasta kvöld. Oft sofnuðum við áður en langt var liðið, en næsta kvöld byrjaði sagan aftur frá byrjun, alltaf jafn spennandi. Bonni segir enn þann dag í dag að hann viti ekki hvernig sagan endar.
Ótal sinnum fengum við að fylgja afa út í bílskúr, þar sem honum leið hvað best. Þar inni voru allskyns tæki og tól sem hann hafði safnað og smíðað í gegnum tíðina. Rennibekkurinn nýttist vel til að smíða hafnaboltakylfur fyrir Bonna, og Helena sérhæfði sig í útskurði með leiðsögn afa. Skemmtilegast var þó í lok dags þegar afi blés trésagið af okkur systkynum með loftpressunni frægu, sem fylgdi ásamt hlátri frá okkur og prakkarsömu brosi frá afa.
Minningarnar um afa lifa áfram í okkur. Í hlýjunni, einfaldleikanum og kærleikanum sem hann gaf svo ríkulega af sér. Blessuð sé minning hans. Við elskum þig, afi.
Helena Kristín Brynjólfsdóttir
Brynjólfur Jón Brynjólfsson
Jón Hólmgeirsson
Páll Halldór Jónsson
Páll Halldór Jónsson
Páll Halldór Jónsson