Fara í efni
Minningargreinar

Guðmundur Oddur Magnússon

Við kveðjum í dag kæran heimilisvin, Guðmund Odd Magnússon – Gumma – Godd – sem lést í hörmulegu bílslysi í byrjun þessa árs.

Snemma kom í ljós að Gummi var opinn fyrir ýmsum nýjum hugmyndastraumum eins og tíðarandinn var upp úr 1970 en hugur hans hneigðist þó sífellt meir að myndlist. Hann var frábær teiknari og tók að sér ýmis verkefni á því sviði, svo sem að gera myndir af félögum sínum í Carmínu sem er einskonar árbók hvers útskriftarárgangs MA.

Leiðin lá síðan suður til að nema myndlist í Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Þar var hann kominn í suðupott nýrra og frumlegra hugmynda sem mótuðu hann fyrir lífstíð. Eftir skólann kom hann aftur norður og var driffjöður með félögum sínum í mikilli menningarstarfsemi í bænum sem kennd var við Rauða húsið. Þar kynntist fólk alls konar nýjum straumum og stefnum, eins og „nýja málverkinu“, „hugmyndalistinni“ og einnig heimspekiumræðu samtímans um manninn og samfélagið. Þetta voru líka árin þegar hann skipulagði með vinum sínum skemmtilegar menningarsamkomur í hlöðunni á Glerá, þar sem m.a. hinir ágætu Norðanpiltar komu fram (Jónsi, Stjáni og Brandur), auk ýmissa annarra. Allt þetta starf var í rauninni aðdragandinn að baráttu listafólks og almennings fyrir betri aðstöðu fyrir listir og menningu á Akureyri.

Það var líklega ein besta ákvörðun Gumma í lífinu að fara til Vancouver í Kanada til að nema grafíska hönnun og þar var hann í nokkur ár. Þaðan kom hann færandi hendi til Akureyrar með það allra nýjasta nýtt í farteskinu og var frumkvöðull að námi á þessu sviði við Myndlistarskólann í bænum. Samhliða þessu uppbyggingarstarfi sem vakti strax athygli tók hann kröftugan þátt í því að koma á fót Listamiðstöðinni í Gilinu.

Það er mikilvægt að halda til haga því góða starfi sem hann vann í sínum heimabæ áður en hann flutti til Reykjavíkur til að vinna að stofnun hönnunardeildar við Listaháskóla Íslands. Þar var hann deildarforseti á sínu fagsviði og síðar prófessor.

Eftir að Gummi flutti til Reykjavíkur varð eðli málsins samkvæmt samgangur manna minni en áður. En alltaf þegar hann kom í „opinbera heimsókn“ til Akureyrar var fagnaðarfundur og Gísli Gunnlaugs bauð í lambalæri í Þingvallastræti.

Guðmundur Oddur – Gummi – Goddur – varð þjóðþekktur listrýnir og menningarskýrandi og vann stórvirki á sínu sviði. Hann var ástríðufullur í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur og hafði unun af því að ræða við fólk og fræða um listir og menningu og að setja hlutina í sitt sögulega samhengi. Stíll hans og mælska gerði hann að vinsælum alþýðufræðara um íslenska listasögu og menningu.

Að leiðarlokum þökkum við fyrir allt sem hann gaf af sér. Minningin um góðan dreng lifir með okkur. Við sendum Ásthildi og fjölskyldunni innilegar samúðarkveðjur.

Þröstur Ásmundsson og Aðalheiður Steingrímsdóttir

Ingi Kristján Pétursson

29. janúar 2026 | kl. 06:30

Ingi Kristján Pétursson

Pétur Björgvin Þorsteinsson skrifar
29. janúar 2026 | kl. 06:00

Haukur Jóhannsson

Knattspyrnufélag Akureyrar skrifar
26. janúar 2026 | kl. 19:45

Haukur Jóhannsson

Gulló, Möggurnar þrjár, Tommi, Siggi og Geiri skrifa
23. janúar 2026 | kl. 10:00

Haukur Jóhannsson

Tómas Lárus Vilbergsson skrifar
23. janúar 2026 | kl. 06:00