Fara í efni
Minningargreinar

Dröfn Þórarinsdóttir – lífshlaupið

Dröfn Þórarinsdóttir húsmóðir fæddist á Akureyri 17. ágúst 1947. Hún lést í faðmi fjölskyldunnar á fallega og litla heimilinu sínu á Hlíð þann 10. júlí síðastliðinn.

Eiginmaður Drafnar var Sigurður Baldvin Friðriksson skipstjóri f. 27. ágúst 1942, d. 4. ágúst 2023. Foreldrar Drafnar voru Þórdís Kristrún Brynjólfsdóttir húsfreyja f. 18. ágúst 1922, d. 6. október 2009, og Þórarinn Guðmundsson sjómaður f. 8. apríl 1915, d. 13. september 1955. Systkini Drafnar voru Brynjar f. 10. júní 1942, d.12. desember 1943, Brynjar Rósberg f. 30. apríl 1944, d. 7. nóvember 1944, Hafdís f. 22. mai 1949, d. 2. mars 2008, Guðmundur Ragnar f. 4. október 1950, d. 24. október 1951 og Heiðar f. 20. mai 1953, d. 29 október 1953.

Börn Drafnar og Sigurðar eru:

1) Þórunn Sigríður gift Sigurði Bjarnari Pálssyni, dætur þeirra eru Inga Dís og Pála Dröfn

2) Friðrik giftur Guðbjörgu Önnu Jónsdóttir, börn þeirra eru Hildur Ósk, Íris Anna, Sigurður Baldvin og Aðalgeir

3) Þórdís Rósa gift Rósberg Halldóri Óttarssyni, börn þeirra eru Hafdís, Kristinn Þór og Júlía Rún

4) Eva Dögg gift Hákoni Melstað Jónssyni, dætur þeirra eru Sara Ísfold og Auður

5) Sigurður Grétar giftur Hörpu Dögg Sigurðardóttur dætur þeirra eru Sonja Kristín, Silja Huld og Lena Ýr.

Dröfn gekk í Barnaskóla Akureyrar og síðar í Gagnfræðaskóla Akureyrar. Ung að árum vann hún á Niðursuðuverksmiðju K. Jónson og Co og síðar hjá fataverksmiðjunni Heklu og ullaverksmiðunni Gefjun. Dröfn vann lengst sem húsmóðir enda mörg börn að hugsa um og sinna með eiginmann sinn mikið á sjónum. Dröfn vann síðari ár á Sjúkrahúsinu á Akureyri bæði á Seli hjúkrunardeild og síðan geðdeild sjúkrahússins. Dröfn bjó á Akureyri alla sína tíð fyrir utan flutninga til Þórshafnar og Vopnafjarðar vegna starfa eiginmanns hennar, en Sigurður var bæði stýrimaður og skipstjóri á togurum þar.

Dröfn sinnti hinum ýmsu sjálfboðastörfum fyrir íþróttafélagið Þór en henni þótti afar vænt um félagið sitt og fylgdist alla tíð með börnunum sínum sem spiluðu fyrir Þór og síðar barnabörnum og barnabarnabörnum og fylgdist hún með þeim í öllum þeim íþróttum sem þau voru í fram á sinn síðasta dag. Sjálfboðastörfin voru sérstaklega fyrir körfuknattleiksdeild Þórs og kvennaknattspyrnuna og var hún m.a í knattspyrnustjórn meistaraflokks kvenna. Dröfn var bæði handhafi silfur og gull heiðursmerkis Íþróttafélagsins Þórs. Dröfn sinnti einnig sjálfboðastarfi á upphafsárum Kaffi Sólar á hjúkrunarheimilinu Hlíð sem hún var þakklát fyrir að hafa tekið þátt í.

Útför Drafnar fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, þriðjudag 28. júlí, kl. 13.00.

Tryggvi Gíslason

Jón Már Héðinsson skrifar
22. júní 2026 | kl. 21:00

Tryggvi Gíslason

Ólafur Þór Ævarsson skrifar
22. júní 2026 | kl. 14:00

Tryggvi Gíslason

Bragi Guðmundsson skrifar
22. júní 2026 | kl. 12:30

Tryggvi Gíslason

Nanna, Emma og Fanny Eggertsdætur skrifa
22. júní 2026 | kl. 08:00

Tryggvi Gíslason – lífshlaupið

Gísli Tryggvason skrifar
22. júní 2026 | kl. 07:30

Jónas Sigurjónsson

Pétur Þór Jónasson skrifar
20. júní 2026 | kl. 16:00