WindWorks í Norðri er stórkostleg hátíð
Alþjóðlegu tónlistarhátíðinni WindWorks í Norðri er nýlokið; einu tónlistarhátíðinni í heiminum sem er eingöngu helguð blásturshljóðfærum.
„Það er með ólíkindum að slíkt góðgæti sem þessir ótal tónleikar eru, með svo færum blásurum úr öllum heimshornum skuli vera í boði hér við ystu sjónarrönd,“ skrifar Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld á Akureyri í pistli sem akureyri.net birtir í dag. „Þessi frábæra tónlistarhátíð er einstök jafnvel á heimsvísu. Flautuleikarinn Pamela De Sensi hefur verið aðal drifkrafturinn í að undirbúa þessa hátíð frá upphafi og að afla styrktaraðila. Samstarfskona hennar hér fyrir norðan er Petrea Óskarsdóttir flautuleikari og kennari við Tónlistarskólann á Akureyri. Mér finnst magnað að blómskrúðið sem þessi hátíð er fái að skrýða tónlistargarðinn á Akureyri og nágrenni.“
Pistill Jóns Hlöðvers: Stórkostleg hátíð blásara