Fara í efni
Menning

Þór flutti 16 tonn af grjóti út í Grímsey

Áhöfnin á varðskipinu Þór flutti í morgun 16 bretti af grjótskífum í landi á Grímsey. Alls er um 11 tonn af grjóti að ræða sem notað verður vegna byggingar á nýrri kirkju í eynni.

„Þegar varðskipið var við eyjuna í morgun var svarta þoka og lítið skyggni en þrátt fyrir það gekk vel að ferja brettin í land,“ segir á vef Landhelgisgæslunnar.

„Þau voru hífð um borð í léttbát Þórs og siglt með þau í Grímseyjarhöfn þar sem byggingaraðilar tóku við þeim. Fyrr í sumar flutti áhöfn Þórs byggingarefni í eyjuna en þá flutti skipið sex tonn af timbri og grjót í Grímsey.

Okkur þykir ánægjulegt að geta aðstoðað við framkvæmdir á nyrsta kirkjubóli landsins þegar varðskipin eru við eftirlit á svæðinu.“

Smellið hér til að sjá fleiri myndir.