Skemmtilegur farsi og leikararnir frábærir
„Farsar hafa alltaf haft einhvern sjarma yfir sér í leikhúsinu. Að mæta í Freyvang og fá að skilja daglegt líf eftir á dyraþrepinu, til þess að horfa á aðrar manneskjur klúðra málunum á yfirsnúningi, er einstaklega skemmtilegt,“ segir Rakel Hinriksdóttir í pistli sem akureyri.net birtir í dag, um leikritið Tom, Dick og Harry sem Freyvangsleikhúsið frumsýndi á föstudagskvöldið.
Rakel segir verkið spennandi, „með ótrúlegum fléttum og misgáfulegum tilraunum persónanna til þess að gera sitt besta í gölnum aðstæðum.“ Og hreifst af frammistöðu leikaranna: „Leikararnir eru algjörlega frábærir. Það er einfaldlega þannig. Öll eru þau sannfærandi í krefjandi hlutverkum með miklum texta, gjarnan mjög óðamála ... “
Pistill Rakelar: Epískar hörmungar í Freyvangi!