Fara í efni
Menning

Sjötta Eyrarrokkið að baki – MYNDIR

Áheyrendur létu sér ekki leiðast á Eyrarrokki. Myndir: Hilmar Friðjónsson.

Tónlistarhátíðin Eyrarrokk fór fram á Verkstæðinu á Akureyri fyrstu helgina í október og var þetta í sjötta sinn sem hátíðin er haldin. Fyrirkomulagið er í föstum skorðum – tónleikar á föstudagskvöld og laugardagskvöld, þar sem fimm hljómsveitir koma fram hvort kvöld. Rokkunnendur geta strax merkt við í dagatalinu í október 2027, því næsta Eyrarrokkshátíð verður haldin 1. og 2. október næsta haust.

Skipuleggjendur hátíðarinnar, þeir Helgi Gunnlaugsson, Rögnvaldur Bragi Rögnvaldsson og Sumarliði Helgason, hafa verið naskir við að finna réttu blönduna af hljómsveitum til að koma fram á hátíðinni gegnum árin. Ný og áhugaverð nöfn í bland við þekktar starfandi sveitir og ekki síst gamalgrónar, áratugagamlar hljómsveitir, sem jafnvel hafa verið vaktar til lífsins eingöngu til að leika á Eyrarrokki.

Eins og áður segir er dagsetning næstu Eyrarrokkshátíðar orðin opinber og miðasala hefst þann 1. maí 2027. Og þá er eins gott að vera á tánum, því undanfarin ár hefur selst upp á hátíðina samdægurs. Um leið og miðasalan fer í gang verður gert heyrinkunnugt hvaða hljómsveitir munu koma fram á hátíðinni næsta haust og skipuleggjendurnir eru þegar byrjaðir að raða nöfnum á blað.

Eftirfarandi hljómsveitir komu fram á Eyrarrokki þetta árið. Hilmar Friðjónsson var með myndavélina á lofti og skrásetti viðburðinn vandlega.

  • Drykkir innbyrðis

 

  • Kolrassa krókríðandi

 

  • Shape

 

  • Volcanova

 

  • Elín Helena

 

  • Strákurinn fákurinn

 

  • Innvortis

 

  • Dr. Gunni

 

  • Sniglabandið

 

  • Dr. Spock