Fara í efni
Menning

Eyrarrokk í þriðja sinn á Verkstæðinu

Helgi og hljóðfæraleikararnir á sviðinu á Eyrarrokki. Ljósmynd: Daníel Starrason

Tónlistarhátíðin Eyrarrokk verður haldin í þriðja sinn á Verkstæðinu við Strandgötu á Akureyri helgina 6. og 7. október næstkomandi. Meðal þeirra sem troða upp að þessu sinni eru Fræbbblarnir og Langi Seli og Skuggarnir.

Hátíðin hefur fest sig í sessi á Verkstæðinu, nýlegum tónleikastað sem einnig hýsir matstölustaðinn Vitann. Heilmiklar endurbætur hafa verið gerðar á staðnum til að gera hann sem bestan til að hýsa slíka tónlistarveislu sem fram undan er, segir í tilkynningu.

Hugmyndina að hátíðinni fengu þeir Helgi Gunnlaugsson, vert á Verkstæðinu, og Hvanndalsbræðurnir Sumarliði Helgason og Rögnvaldur Rögnvaldsson. „Þeim fannst vanta þessa tegund tónleika í bæinn, þ.e. með hljómsveitum sem sjaldan heimsækja bæinn en eiga hinsvegar fullt erindi. Um hugsjónarstarf er að ræða og taka drengirnir áðurnefndu engin laun fyrir að vinna að hátíðinni og fer inngangseyrir eingöngu í að greiða hljómsveitum, sem þær nota gjarnan til að dekka ferðakostnað en Eyrarrokkið sér um gistinguna,“ segir í tilkynningu frá hátíðinni.

„Innkoman ein og sér er hinsvegar ekki stórkostleg upphæð og því reynir á styrktaraðila sem vilja hjálpa til og hefur Eyrarrokk notið góðs af nokkrum slíkum. Þeir mættu þó gjarnan vera fleiri.“

Eyrarrokk tónlistarhátíðin var fyrst haldin árið 2021. Hljómsveitirnar eru 14 talsins sem koma fram í ár á tveimur kvöldum 6. og 7. október: Langi Seli og skuggarnir, Rock paper sisters, GG blús, Múr, Sóðaskapur, Miðnes, Leður, Celebs, Fræbbblanir, Exit, Trúboðarnir, Deep Jimi and the Zep creams, Thinktak og Magni.

„Það er að sjálfsögðu von viðburðarhaldara að hægt verði að festa hátíðin almennilega í sessi og hvetja því sem flesta til að nálgast miða á tix.is en hægt er að kaupa bæði miða á stakt kvöld sem og helgarpassa,“ segir í tilkynningunni.

Smellið hér til að kaupa miða

Eyrarrokk á Facebook