Píkasso? Listin lætur ekki bæla sig niður
Göng undir Hörgárbraut eru lifandi listaverk, ef svo má segja, þó ef til vill finnist mörgum fæst af því sem þar ber fyrir augu ekki vera list, fremur bara veggjakrot eins og graffiti er gjarnan kallað á íslensku. En hvaða rétt höfum við til að dæma?
Af hverju ekki list? Tjáning ungmenna, ef það eru þá endilega ungmenni sem þarna eru að verki, felur í sér eitthvað sem verður til í huga þeirra, drög að sköpun sem síðan verður raunveruleg á vegg undirganganna með úðabrúsa eða tússpenna sem verkfæri.

Akureyri.net sagði frá því fyrir skemmstu að á nýmálaða veggi undirganganna hafi verið hengdar tvær litlar myndir. Var það ein myndlistarsýning eða tvær? Önnur á eystri veggnum og hin sýningi á þeim vestari (nákvæmara væri að tala um suðaustur og norðvestur í þessu sambandi). Enginn veit hver stóð fyrir sýningunni nema sýningarstjórinn sjálfur. Mögulega fleiri.
Hvítmálaðir veggirnir geymdu þó sögu um alls konar listaverk sem fæstir vita hver er höfundur að. Undir hvítu málningunni.
Þegar útsendari átti leið um göngin núna í vikunni bar tvennt fyrir augu; önnur upphengda myndin var þar ekki lengur og hvíti veggurinn er nú orðinn vettvangur skilaboða með rauðum lit, krot eða list, skiptir ekki öllu máli. Þarna eiga sér stað rökræður á milli mínímalista og einhvers sem er á móti. Þarna setti einhver spurningamerki við Píkasso. Ást á Akureyri, eða fari allt til fjandans. Einn tvísýnn listamaður eða fleiri? Getur heilalaus hálfviti gert mynd og skrifað um það að auki?













Einhver sem þarna átti leið um hefur möguelga hrifist af súrrealískri mynd í gylltum ramma – nú eða bara rammanum sjálfum. Eða þá að eigandi verksins, sýningarstjóri suðausturveggsins lauk sýningunni. Norðvesturveggurinn geymir enn Píkasso. Sýningarlok eru óþekkt.