Fara í efni
Menning

Matiss og Tirzo unnu alþjóðlega keppni

Matiss Leo Merkl og Tirzo Garrigós störfuðu, æfðu og spiluðu tónleika á Akureyri síðasta sumar. Mynd: Rakel Hinriksdóttir

Matiss Leo Meckl og Tirzo Garrigós sigruðu í Grachtenfestival Conservatorium Concours (GCC) keppninni í Hollandi, en þeir eru í námi við Konunglega tónlistarháskólann í Den Haag. Matiss er fyrrum nemandi Tónlistarskólans á Akureyri, en sagt er frá sigri þeirra á heimasíðu skólans.

Saman mynda Matiss og Tirzo Puruñeka Duo, en þeir voru taldir skara framúr með frumlegri nálgun á slagverkssamleik, segir í fréttinni á vef Tónlistarskólans – tonak.is. Sigur í keppninni færir þeim peningastyrk og tækifæri til þess að koma fram á Grachten-hátíðinni í sumar, stærstu tónlistarhátíð Hollands á sviði klassískrar tónlistar og jazz.

Úrslitin fóru fram síðastliðinn sunnudag, 8. febrúar.