Fara í efni
Menning

Lesa ljóð Jónasar Þ. í Svörtum bókum

Þórður Sævar Jónsson, Jónas Þorbjarnarson og Arnar Arngrímsson. Þórður og Arnar bjóða til ljóðakvölds í Svörtum bókum, og lesa ljóð Jónasar (1960-2012)

Í kvöld, fimmtudagskvöldið 16. október kl. 20.00 verður ljóðakvöld í Svörtum bókum. Arnar Már Arngrímsson og Þórður Sævar Jónsson ætla að tileinka Jónasi Þorbjarnarsyni kvöldið, og lesa vel valin ljóð eftir hann. Jónas var Akureyringur, fæddur 1960 og lést árið 2012. Hann gaf út níu ljóðabækur. Ljóðakvöldið er öllum opið og enginn aðgangseyrir.

„Mér varð ljóst að þarna var komið skáldið sem mig vantaði þegar ég var unglingur. Skáld sem orti um krakka að leik við Glerá, ljóð sem gerðust í Hlíðarfjalli, Dagverðareyri og Hjalteyri. Ljóð sem fjölluðu um mína daga sem urðu dálítið merkilegri fyrir vikið,“ segir Arnar  Már Arngrímsson í pistli sem birtur var í morgun á Akureyri.net um kynni sín af ljóðum Jónasar.

Hér má sjá viðburðinn á Facebook.

Jónas Þorbjarnarson ljóðakvöld

Þrjár af bókum Jónasar, Tímabundið ástand, Hvar endar maður? og Hliðargötur.