Fara í efni
Menning

Kynnti drög að nýrri kirkju í Grímsey

Tillaga að nýrri kirkju í Grímsey.

Frumdrög eru tilbúin að nýrri kirkju í Grímsey, í stað Miðgarðakirkju sem brann til grunna í september. Hjörleifur Stefánsson arkitekt kynnti drögin í síðustu viku á fundi með sóknarnefnd og íbúum eyjarinnar.

„Það sem einkenndi Miðgarðakirkju var forkirkjan og turninn með toppmynduðu þaki en efri hluti hans var undir þrengra formi og umhverfis stallinn sem myndaðist á skilunum var handrið af renndum pílárum og á hornstoðunum fjórum voru litlir málmkrossar. Nýja kirkjan sem kynnt var á fundinum er með svipuðum turni,“ segir á vef Akureyrarbæjar.

„Á íbúafundinum var auk þess kynnt hugmynd um að gera veggklæðningar nýrrar kirkju úr lerki/rekavið eins og var í gömlu kirkjunni. Einnig var lagt til að gera gólf kirkjunnar úr stuðlabergsflísum, að þakið verði lagt þakskífum úr stuðlabergssneiðum og altarið hannað úr bergstuðlum, þannig leitast við að tengja húsið náttúru eyjarinnar og sögu. Neðan við Miðgarða og víðar á vesturströnd eyjarinnar eru fallegir stuðlabergsklettar og þar má sjá lárétta stuðlastalla, sem minna helst á „kirkjugólfið“ við Kirkjubæjarklaustur.“

Fram kemur að við hönnun byggingarinnar þurfi að horfa til byggingarreglugerðar og bæta við rými til að uppfylla kröfur m.a. varðandi tækjabúnað, ræstiklefa, snyrtingar og aðgengi fatlaðra. Einnig er horft til þess að hægt verði að nýta nýja kirkju sem best m.a. með tilliti til annarra athafna en helgihalds.

„Á fundinum var einróma samþykkt að halda áfram með verkefnið, fullvinna teikningarnar og gera kostnaðaráætlun,“ segir á vef bæjarins.

  • Söfnun fyrir nýrri kirkju stendur yfir og þeim sem vilja leggja henni lið er bent á reikning Miðgarðakirkju, 565-04-250731, kt. 4602692539.

Með fréttinni á vef Akureyrar er fjölbreytt safn mynda af Miðgarðakirkju. Smellið hér til að skoða.